Falið að skoða ábendingar um hvarf Guðmundar og Geirfinns Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 20. maí 2019 06:00 Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra. Vísir/Tryggvi Páll
Dómsmálaráðherra hefur sett Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, til að taka afstöðu til þess hvort hefja beri lögreglurannsókn á grundvelli nýrra ábendinga um afdrif Guðmundar- og Geirfinns Einarssona. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins. Samk væmt sakamálalögum getur ríkissaksóknari kveðið á um rannsókn máls, mælt fyrir um framkvæmd hennar og gefið öðrum ákærendum fyrirmæli um einstök mál. Málið er á borði ríkissaksóknara en Sigríður Friðjónsdóttir tilkynnti dómsmálaráðherra um vanhæfi sitt til að fara með málið í bréfi til dómsmálaráðherra 12. desember síðastliðinn. Var Halla Bergþóra settur ríkissaksóknari í stað Sigríðar 22. mars. Þegar Davíð Þór Björgvinsson, settur saksóknari í endurupptökumáli þeirra fimm sem sýknaðir voru af aðild að málinu síðastliðið haust, skilaði vinnu sinni til ríkissaksóknara vakti hann við það tækifæri sérstaka athygli á ábendingum um afdrif mannanna tveggja sem komið hafa fram á undanförnum árum. Þar á meðal var ábending um afdrif Guðmundar sem leiddi til handtöku tveggja manna árið 2015. Einnig voru teknar skýrslur af tveimur vitnum árið 2016 vegna meintra atvika í Vestmannaeyjum dagana í kringum hvarf Geirfinns árið 1974. Fréttablaðið greindi frá því í haust að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lægi undir feldi vegna málsins og hefði hug á að hefja rannsókn að nýju en biði formlegrar afstöðu ríkissaksóknara. Embættið hefur aðeins forræði á máli Guðmundar en hvarf Geirfinns heyrir hins vegar undir lögregluna á Suðurnesjum.Sakborningarnir í Guðmundar- og Geirfinnsmálum.Ábending um Guðmund Stefán Almarsson, sem er talinn hafa logið því að lögreglu að Kristján Viðar og Sævar ættu þátt í hvarfi Guðmundar, var yfirheyrður af lögreglu síðla árs 2015 í kjölfar vitnisburðar fyrrverandi sambýliskonu Stefáns sem bar að hún hefði verið farþegi í bíl undir hans stjórn þegar ekið var á Guðmund Einarsson aðfaranótt 27. janúar 1974. Guðmundur hafi verið tekinn upp í bílinn og henni svo ekið heim en mjög hafi verið dregið af Guðmundi þegar hún yfirgaf bílinn. Einnig var yfirheyrður Þórður Eyþórsson sem konan sagði einnig hafa verið farþega í bílnum. Stefán og Þórður neituðu hins vegar staðfastlega nokkurri aðkomu að hvarfi Guðmundar. Til er skýrsla af Stefáni frá árinu 1977 um ferðir hans kvöldið 27. janúar 1974. Hann sagðist hafa verið með nafngreindum vini sínum að skemmta sér í Reykjavík. Í skýrslutöku játaði vinur þessi hvorki né neitaði að hafa verið með Stefáni umrætt kvöld, en hann viðurkenndi að hafa þekkt Guðmund frá grunnskólaárum sínum. Hann er eldri bróðir Þórðar Eyþórssonar og mun hafa verið í meiri vinskap við Stefán en Þórður sem var aðeins 16 ára þegar Guðmundur hvarf. Ábendingar um Geirfinn Í lok árs 2016 gaf maður sig fram við lögreglu og bar um að hafa séð þrjá borgaralega klædda menn koma á smábáti til hafnar í Vestmannaeyjum 20. nóvember 1974, daginn eftir að Geirfinnur hvarf í Keflavík. Tveir þeirra hafi leitt þann þriðja á milli sín sem hafi verið máttfarinn og að því er virtist rænulítill. Þeir hafi komið inn í verbúð þar sem sjónarvotturinn var staddur og dvalið þar dágóðan tíma í lokuðu herbergi með leyfi kokksins í mötuneyti fyrirtækisins. Þegar þeir gengu aftur út hafi sá sem var á milli þeirra talað til hans og sagt: „Mundu eftir mér.“ Hann hafi svo horft á eftir þeim fara aftur um borð í trilluna og sigla frá bryggju. Nokkru síðar komu þeir að landi aftur en fóru þá bara tveir frá borði. Mennina hafi hann ekki séð aftur fyrr en nærri tveimur áratugum síðar austur á landi þar sem annar þeirra hafi verið að vinna í tengslum við lagningu háspennulínu fyrir Landsvirkjun. Einnig var tekin skýrsla af fyrrverandi sambýliskonu mannsins sem var með honum í verbúðinni í Eyjum. Hún sá ekki mennina þrjá. Hins vegar hafi hún fengið símtal tveimur dögum síðar og þeim hótað lífláti. Þau hafi óttast hótunina og því ekki sagt neitt fyrr en nú.
Birtist í Fréttablaðinu Guðmundar- og Geirfinnsmálin Lögreglumál Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Sjá meira