Deilurnar hafa stigmagnast yfir helgina. Búið er að vísa sendiherra Kanada í Sádí-Arabíu úr landi ásamt því að stöðva öll viðskipti milli ríkjanna. Sádí-Arabar saka Kanadamenn um að hlutast til í innanríkismálum sínum en stjórnvöld í Ottawa eru hvergi bangin og segjast ætla að halda áfram að berjast fyrir mannréttindum.
Þannig er haft eftir utanríkisráðherra Kanada á vef breska ríkisútvarpsins að kanadískum stjórnvöldum þyki miður að búið sé að vísa sendiherra þeirra frá Sádí-Arabíu. Engu að síður ætli Kanadamenn að standa vörð um tjáningarfrelsið, réttindi kvenna og önnur mannréttindi - sama hvar brotið sé á þeim. „Við munum ekki hika við að tala fyrir þessum gildum og trúum því að umræður séu kjarni alþjóðastjórnmála,“ segir Crystia Freeland.
Sádí-arabíski starfsbróðir hennar, Adel al-Jubeir, hefur áður lýst því yfir að afstaða kanadískra stjórnvalda byggi á villandi upplýsingum. Þar að auki njóti allir í haldi sádí-arabískra stjórnvalda ákveðinna réttinda.
Ein umdeildasta birtingarmynd deilunnar er tíst sem birtist á Twitter-reikningi sem á vef BBC er sagður tengjast stjórnvöldum í Ríad. Í tístinu má sjá mynd af flugvél sem virðist fljúga í átt að einu þekktasta kennileiti Toronto, CN-turninum. Við myndina er skrifað að ekki skuli „vasast í því sem ekki kemur manni við.“ Netverjar voru ekki lengi að benda á líkindin milli tístsins og atburðanna 11. september árið 2001.
More very concerning rhetoric emerging from #SaudiArabia, once again involving aviation.
— Alex Macheras (@AlexInAir) August 6, 2018
In Saudi's latest rift, now with #Canada — an account connected to the Saudi Royal Court has published images with text of an @AirCanada Boeing 767 descending towards CN Tower in Toronto pic.twitter.com/FKcrikI5QD