Virði stöðugleikaeigna jókst um 20% Kjartan Kjartansson skrifar 8. febrúar 2018 15:43 Félagið Lindarhvoll ehf. hefur haldið utan um stöðugleikaeignirnar. Fjármálaráðuneytið
Heildarandvirði eigna sem slitabú fallinna fjármálafyrirtækja hafa afhent sem stöðugleikaframlög mun hafa aukist um fimmtung samkvæmt áætlunum ríkisstjóðs. Alls gæti verðmæti eignanna numið 458 milljörðum króna. Slitabúin fengu heimild til að greiða stöðugleikaframlag í formi eigna í stað greiðslu á stöðugleikaskatti í lagabreytingum sem voru gerðar í tengslum við áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta árið 2015. Þá var verðmæti eignanna talið nema um 384 milljörðum króna. Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu kemur fram að áætlað sé að heildarandvirði stöðugleikaeigna gæti numið um 458 milljörðum króna við lok úrvinnslu þeirra. Verðmætaaukningin á þeim tveimur árum sem ríkissjóður fékk eignirnar í hendur verði því um 74 milljarðar króna. Í byrjun árs 2018 hefur ríkissjóður ráðstafað alls um 204 milljörðum af tekjum vegna stöðugleikaeigna, að því er segir í tilkynningunni. Þar af hafa um 34 milljarðar runnið til þess að mæta tapi vegna lækkunar stofns til sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki, um 40 milljörðum hefur verið ráðstafað til lækkunar lífeyrisskuldbindinga gagnvart Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og um 130 milljörðum hefur verið ráðstafað beint til niðurgreiðslu skulda ríkissjóðs.
Mest lesið Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Halldór Blöndal er látinn Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Erlent Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Innlent Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Innlent Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Erlent Fleiri fréttir Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Skilaboð Vestfirðings til stjórnvalda ekki útvarpshæf eftir 50 milljóna króna tjón Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Óska eftir myndefni frá Kársnesi vegna mannslátsins „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni „Grafalvarlegt“ að Ísland fari gegn vísindalegri ráðgjöf Laxar struku úr landeldi í Eyjum Starfsáætlun þingsins kippt úr sambandi Faldi töflurnar í nammipoka Ekið á gangandi vegfaranda á Sæbraut Makríllinn enn hitamál og áfall í fiskeldi í Tálknafirði Hjálmar gefur ekki kost á sér Eyjamenn ósáttir við nýbirta samgönguáætlun Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Gæsluvarðhald vegna andláts í Kópavogi framlengt Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Halldór Blöndal er látinn Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn „Þarna var bara verið að tikka í box“ Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Umdeildur athafnamaður og vendingar á vinstri væng Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn Sjá meira