Árás í verslun 10-11 á borði lögreglu Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 5. janúar 2018 13:00 Í skeyti lögreglu kom fram að tveir menn hafi látið högg og spörk dynja á starfsmönnum eftir að þeir höfðu sakað mennina um þjófnað. Já.is
Lögreglan hefur ekki haft uppi á tveimur mönnum sem grunaðir eru um að hafa ráðist að starfsmönnum 10-11 á Laugavegi 116 skömmu eftir miðnætti í nótt. „Við erum að fá upptökur af þessu núna á eftir og þá finnum við þá fljótt,“ segir Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi í samtali við Vísi. Hann segir að ekki hafi verið um rán að ræða heldur um líkamsárás á tvo starfsmenn. „Sem betur fer eru þeir ekki alvarlega slasaðir,“ segir Guðmundur Páll og bætir við að ekki er talið að mennirnir hafi verið vopnaðir.Í skeyti lögreglunnar í morgun kom fram að tveir menn hafi látið högg og spörk dynja á starfsmönnum eftir að þeir höfðu sakað mennina um þjófnað. Árni Pétur Jónsson, framkvæmdastjóri 10-11, segist ekki geta tjáð sig um málið. „Þetta er bara atburður sem átti sér stað þarna og hann hefur verið kærður til lögreglu. Lögreglan er með málið og þeir hafa fengið öll gögn. Við erum auðvitað með öryggiskerfi og myndavélar og annað slíkt og málið er bara í farvegi,“ segir Árni Pétur í samtali við Vísi.
Tengdar fréttir Létu höggin dynja á starfsmönnum Ráðist var á starfsmenn í svokallaðri sólarhringsverslun í Reykjavík skömmu eftir miðnætti. 5. janúar 2018 06:25 Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira
Létu höggin dynja á starfsmönnum Ráðist var á starfsmenn í svokallaðri sólarhringsverslun í Reykjavík skömmu eftir miðnætti. 5. janúar 2018 06:25