Stjörnuspá Siggu Kling - Bogmaðurinn: Mikilvægt að breyta í kringum sig 3. ágúst 2018 09:00
Elsku Bogmaðurinn minn, í raun þolirðu ekki hversdagsleikann því þá finnst þér lífið vera tóm leiðindi, ekki vera að vorkenna þér, það er engin þörf því þú ert með lausnir alls staðar svo þú skalt hugsa þannig, í lausnum. Þú heldur þér of mikið til baka í ástinni þá er ég að meina ef þú ert á lausu eða nýbyrjaður í ástarsambandi en þegar þér finnst ástin vera að koma verðurðu hræddur og hleypur í burtu. Mikilvægasta ástarsamband sem þú getur átt er við sjálfan þig elsku Bogmaður því þú ert bæði skemmtileg og heillandi persóna og gerir alltaf það sem þarf til að standa við skuldbindingar þínar, sem er alveg frábært en þú verður að vinna skapandi störf því annars hundleiðist þér. Þér er búið að finnast það vanti eitthvað inn í tilveruna þína en ekki fókusera á það sem vantar heldur vertu glaður yfir því sem þú hefur. Þú hefur stórar hugsjónir sem munu rætast, svo ekki efast um sjálfan þig. Þú þarft að hafa frelsi í búsetu og allt sem tengist sameign eða þú þurfir sífellt að taka tillit til einhvers sem aðrir vilja þá stoppar frelsi þitt, en þú átt eftir að láta þann draum rætast að vera sjálfstæður. En núna er rétti tíminn til að láta sig vaða út í svolitla óvissu því enginn elskar óvissuferðir meira en þú. Þú þarft að taka út barnið í sjálfum þér og leika þér meira, lífið er leikvöllur – það fer þér svo alls ekki að reyna að vera of fullorðins og hafa skoðun á öllu og sérstaklega ekki sjálfum þér! Það er mikilvægt að breyta í kringum sig, til dæmis að setja upp fleiri spegla – það hringdi í mig heldri kona um daginn og bauð mér í brunch, hún sagðist hafa lesið margt sem ég hef skrifað og hún væri sú kona sem hefði 13 spegla hjá sér. Hún sagði mér einnig að pabbi sinn hefði verið forstjóri yfir stóru elliheimili og hann hefði sett spegla út um allt þar, seinna kom það svo í ljós að fólk rétti meira úr sér, heilsan batnaði og þar af leiðandi aukin gleði.Skilaboðin til þín eru: Þú ert snillingur að hrinda hlutum í framkvæmd, núna er rétti tíminn.Frægir Bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collection, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjallkona og leikkona, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Jói á Fabrikkunni, Sigga Dögg kynfræðingur, Hemmi, hársnillingur á Módus, Lovísa, hönnuður hjá Kjólar og konfekt, Kjartan Kjartansson athafnamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Bíó og sjónvarp Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Fleiri fréttir Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Sjá meira