Dregur sig í hlé vegna ásakana dóttur sinnar Andri Eysteinsson skrifar 22. september 2018 20:12 Jim Knoblach hefur dregið framboð sitt til baka. Twitter/ Farhan Abdi
Þingmaður Repúblikanaflokksins í ríkisþingi Minnesota í Bandaríkjunum hefur dregið til baka framboð sitt til endurkjörs eftir að dóttir hans sagði frá kynferðisbrotum hans gagnvart sér til margra ára. Washington Post og Guardian eru meðal þeirra sem fjalla um málið. Þingmaðurinn, Jim Knoblach hefur verið þingmaður svæðis 14B í miðju Minnesotaríki síðan árið 2015, áður hafði hann setið á þinginu fyrir svæði 15A á árunum 1995-2007. Knoblach hafði áætlað að sitja áfram á þingi eftir kosningar sem fram fara samhliða kosningum víðs vegar um Bandaríkin þann 6. nóvember næstkomandi. Sagði frá áralangri misnotkun Dóttir Knoblach, Laura Knoblach, setti strik í reikning hans þegar hún steig fram og sagði sögu sína í viðtali við Minnesota Public Radio (MPR), þar sagði hún frá áralangri kynferðislegri misnotkun sem hún þurfti að þola af hendi föður síns. Hin 23 ára gamla Laura sagði frá því að faðir hennar hafði frá því að hún var níu ára gömul endurtekið snert hana óviðeigandi, kysst, sleikt og bitið hana gegn hennar vilja. Laura sagði að hún hefði sagt nánum vinum, fjölskyldumeðlimum og starfsmönnum skóla og kirkjunnar frá atburðum sem hún þurfti að þola þar til hún varð 21 árs gömul. Lögfræðingur Knoblach neitaði ásökununum fyrir hönd skjólstæðings síns í viðtali við sömu stöð. Nokkrum klukkustundum eftir neitun lögfræðingsins, Susan Gaertner, gaf Knoblach út yfirlýsingu þar sem hann dró framboð sitt til baka.Ekki í fyrsta sinn sem Laura stígur fram Í yfirlýsingu Knoblach sagðist hann elska börn sín mest af öllu og myndi aldrei valda þeim skaða og sagði ásakanir dóttur hans rangar. Knoblach sagði hann og aðra fjölskyldumeðlimi hafa í mörg ár reynt að ná sáttum við hana án árangurs. Einnig sagði þingmaðurinn að Laura hafi ekki verið í sambandi við fjölskylduna í þó nokkurn tíma. Ásakanir sem hún bar á föður sinn á Facebook síðu sinni árið 2016 hafi verið rannsakaðar af lögreglu sem vísaði málinu að lokum frá. MPR staðfestir að hún hafi leitað til presta og kennara vegna föður síns. Prestur sem Laura ræddi við tilkynnti málið til barnaverndar en var þar sagt að málið hljómaði ekki nógu alvarlegt til að teljast til misnotkunar. Einnig hefur MPR í sínum fóru afrit af bókun sem var gerð þegar Laura ræddi við kennara um föður sinn. Jim Knoblach hefur setið á ríkisþinginu samtals í átta kjörtímabil en ljóst er að þau verða ekki fleiri í bráð.
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Fleiri fréttir Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Sjá meira