Frakkar frysta eigur Írana vegna misheppnaðrar árásar Samúel Karl Ólason skrifar 2. október 2018 10:35 Lögregluþjónar að störfum í Frakklandi á dögunum. Vísir/EPA
Yfirvöld Frakklands hafa lagt hald á og fryst eigur leyniþjónustu Íran og tveggja íranskra embættismanna vegna misheppnaðrar sprengjuárásar nærri París í júní. Árásin beindist gegn samkomu íranskra stjórnarandstæðinga sem eru í útlegð. Samtökin sem um ræðir heita National Council of Resistance of Iran og eru starfrækt í París. Frakkar höfðu varað Íran við hörðum viðbrögðum þegar íranskur erindreki og tveir aðrir voru handteknir vegna misheppnuðu árásarinnar.Nánar tiltekið átti árásin að beinast gegn samkomu í Villepinte þann 30. júní. Rudy Giuliani, lögmaður Donald Trump, og nokkrir fyrrverandi ráðherrar frá Evrópu og Mið-Austurlöndum voru á samkomunni. Í tilkynningu frá bæði Utanríkisráðuneyti og Fjármálaráðuneyti Frakklands segir að svo alvarlegt atvik verði að hafa afleiðingar. Samhliða haldlagningunni segir France24 frá því að umfangsmiklar lögregluaðgerðir hafi átt sér stað í norðurhluta Frakklands í morgun og þær hafi beinst gegn samtökum sjíta og leiðtogum samtakanna, sem sakaðir eru um að styðja við hryðjuverkahópa. Samtökin og leiðtogar þeirra eru sagðir tengjast Íran.Það hefur þó ekki verið staðfest að aðgerðirnar tengist misheppnuðu sprengjuárásinni. Le Monde segir samtökin sem um ræðir þó tengjast bæði Íran og Hezbollah hryðjuverkasamtökunum.Versnandi samband Frakklands og Íran gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir Írana þar sem Frakkland hefur hingað til verið helsta stuðningsríki kjarnorkusáttmálans við Íran. Eftir að Trump dró Bandaríkin frá sáttmálanum hafa Frakkar hvatt til þess að halda sáttmálanum virkum.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira