Hinn ólseigi Murray hetjan gegn West Ham Anton Ingi Leifsson skrifar 5. október 2018 20:45 Murray fagnar í kvöld vísir/getty Brighton vann sinn annan sigur á leiktíðinni er liðið vann 1-0 sigur á West Ham. Leikurinn var fyrsti leikur áttundu umferðarinnar. Það var gamla kempan, Glenn Murray, sem skoraði eina mark leiksins á 25. mínútu en þetta var fimmta mark Murray í átta leikjum. Eftir laglega skyndisókn barst boltinn inn í teiginn þar sem gammurinn Murray var mættur og kom boltanum yfir. Ekki flókin íþrótt. Brighton er komið með átta stig eftir fyrstu átta leikina en eftir góða síðustu leiki var West Ham skellt aftur á jörðina. Liðið nú í fimmtánda sætinu með sjö stig. Enski boltinn