Dwight Yorke vill verða stjóri Birkis Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 5. október 2018 17:00 Yorke var um áraraðir í herbúðum Aston Villa vísir/getty
Fyrrum framherjinn Dwight Yorke segist vera búinn að sækja um starf knattspyrnustjóra Aston Villa. Hann telur sig geta komið með hugarfar sigurvegara inn í liðið. Yorke spilaði fyrir Villa á árunum 1989 til 1998 áður en hann fór til Manchester United. Steve Bruce var rekinn frá Aston Villa á miðvikudag og sagði bráðabirgðastjórinn Kevin MacDonald við SkySports í dag að félagið væri nú þegar farið að skoða menn í starfið. Hann bjóst við því að nýr maður væri kominn í starfið áður en komandi landsleikjahléi lýkur. Yorke hefur ekki starfað sem aðalþjálfari, hans eina reynsla af þjálfun er sem aðstoðarþjálfari Trínidad og Tóbagó frá 2009-2010. „Þetta er starf sem ég hef hundrað prósent áhuga á og ég hef látið það skýrt í ljós að ég vil ræða við félagið. Hvort það gerist eða ekki mun ég bíða við símann,“ sagði Yorke við Sky. „Ég sendi ferilskrána inn og er að reyna að komast í samband við stjórnarformanninn svo ég er að gera allt sem ég get gert.“ „Ég hef horft upp á félagið fara úr því að vera virkilega sterkt á heimsvísu og niður á þann stað sem það er í dag. Mér finnst félagið þurfa á einhverju nýju að halda.“ Yorke segist hafa stuðning fyrrum knattspyrnustjóra síns Sir Alex Ferguson. Hann sótti einnig um starf stjóra Villa áður en Steve Bruce var ráðinn. „Ég spilaði fyrir félagið og skil það og veit hverju stuðningsmennirnir búast við. Ég tel ég geti komið sigurhugarfari aftur inn í félagið,“ sagði Dwight Yorke. Birkir Bjarnason er á mála hjá Aston Villa.
Enski boltinn Tengdar fréttir Thierry Henry nýr stjóri Birkis? Thierry Henry gæti orðið nýr knattspyrnustjóri Birkis Bjarnasonar en hann er efstur á óskalista forráðamanna Aston Villa. 4. október 2018 17:30 Mest lesið Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Fótbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Lík fannst á leikvangi Charlton Enski boltinn Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Fleiri fréttir Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Sjá meira
Thierry Henry nýr stjóri Birkis? Thierry Henry gæti orðið nýr knattspyrnustjóri Birkis Bjarnasonar en hann er efstur á óskalista forráðamanna Aston Villa. 4. október 2018 17:30