Lífið

Alan Alda með Parkinson

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alan Alda er 82 ára gamall.
Alan Alda er 82 ára gamall.
Bandaríski leikarinn Alan Alda hefur greint frá því að hann sé með Parkinson.

Alda sló fyrst í gegn í þáttunum M*A*S*H en þessi 82 ára leikari greindi frá því í morgunþætti CBS að hann hafi verið að berjast við sjúkdóminn í þrjú og hálft ár.

„Ástæðan fyrir því að ég er tilbúinn að tala opinberlega um sjúkdóminn er að ég hef lifað góðu lífi frá því að ég greindist,“ segir Alda.

„Ég get enn gert fullt af hlutum og er til að mynda að mæta þrisvar sinnum í viku í hnefaleikatíma.“

Hér að neðan má sjá viðtalið við Alda í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×