Hættulegt ferðaveður undir Eyjafjöllum í fyrramálið Birgir Olgeirsson skrifar 13. febrúar 2018 22:33 Veðrið verður ekki glæsilegt á morgun og ferðalangar beðnir um að sýna aðgát. Veðurstofa Íslands
Hættulegt ferðaveður verður undir Eyjafjöllum í fyrramálið. Veðurstofa Íslands hefur varað við norðaustan roki á Suður- og Suðausturlandi frá klukkan fimm til hádegis á morgun. Er búist við austan og norðaustan 23 til 30 metrum á sekúndu frá Hvolsvelli og austur með Eyjafjöllum en norðaustan 15 til 23 metrum á sekúndu vestan til á svæðinu. Mjög snarpar vindhviður verða undir Eyjafjöllum og hætta á foktjóni. Verður takmarkað skyggni í ofankomu og skafrenningi á svæðinu. Búist er við norðaustan stormi á Faxaflóa, 18 til 25 metrum á sekúndu, og mjög snörpum vindhviðum við fjöll, og er Kjalarnes og Hafnarfjall nefnt sérstaklega í viðvörun Veðurstofu. Lélegt skyggni verður í skafrenningi, einkum á fjallvegum og eru ferðalangar beðnir um að sýna aðgát. Allt landið er í raun undir, gul viðvörun gildir í öllum landsfjórðungum á morgun nema á Suður- og Suðausturlandi þar sem appelsínugul viðvörun verður í gildi. Það mun því hvessa í nótt, austan og norðaustan 15-25 á morgun, en 25-30 syðst á landinu. Lægir eftir hádegi sunnanlands, síðar einnig í öðrum landshlutum, allvíða austan 8-15 undir kvöld. Snjókoma, slydda eða rigning um allt land, einkum á austanverðu landinu. Hiti um og yfir frostmarki síðdegis.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á fimmtudag:Norðaustan 8-15 m/s á Vestfjörðum, annars austlæg eða breytileg átt 3-10. Skúrir eða él, en lengst af þurrt suðvestantil á landinu. Víða frostlaust við ströndina, en vægt frost til landsins.Á föstudag og laugardag:Suðvestan 8-13 m/s og él, en hægari vindur og bjartviðri á N- og A-landi. Hiti rétt ofan frostmarks við S- og V-ströndina, annars frost 1 til 7 stig.Á sunnudag:Sunnanátt með snjókomu og síðar slyddu eða rigningu. Hlýnandi veður.Á mánudag:Sunnanátt með rigningu eða súld, en þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 5 til 10 stig.Á þriðjudag:Snýst í suðvestanátt með skúrum og síðar éljum og kólnandi veðri. Þurrt norðaustantil á landinu.
Veður Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira