Sport

Kóreuþjóðirnar senda sameiginlegt íshokkílið á Vetrarólympíuleikana

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hér má sjá er leikmenn Kóreuþjóðanna hittust í fyrsta skipti í dag. Þær munu nú æfa og spila saman.
Hér má sjá er leikmenn Kóreuþjóðanna hittust í fyrsta skipti í dag. Þær munu nú æfa og spila saman. vísir/getty
Tólf íshokkíkonur frá Norður-Kóreu lentu í Suður-Kóreu í dag þar sem þær munu æfa með stöllum sínum í suðrinu enda mun Kórea senda sameiginlegt lið til keppni í kvennahokkíinu á Vetrarólympíuleikunum.

Þetta eru söguleg tíðindi sem vonast er til að munu hjálpa til við erfið samskipti þjóðanna. Ísinn var brotinn á dögunum er Norður-Kórea sagðist vilja vera með á leikunum og í kjölfarið var þetta stóra skref stigið.

Ekki eru samt allir í Suður-Kóreu sáttir við þetta skref og finnst ekki gott að stelpurnar fra Norður-Kóreu séu að taka spiltíma frá þeirra stúlkum.

Alþjóða ólympíunefndin hefur þegar samþykkt að þjóðirnar tefli fram sameiginlegu liði í Pyeongchang. Leikarnir hefjast 9. febrúar og alls munu 22 íþróttamenn koma á leikana frá Norður-Kóreu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×