Væntingar fjárfesta ráða verði hlutabréfa Hrannar Pétursson skrifar 7. febrúar 2018 07:00 Í huga margra byggja fjárfestar ákvarðanir um kaup og sölu hlutabréfa aðallega á upplýsingum úr rekstrar- og efnahagsreikningum fyrirtækja. Staðreyndin er hins vegar sú, að ótal margir þættir hafa áhrif á fjárfesta, til dæmis trúverðugleiki stjórnenda, orðspor fyrirtækis, viðskiptahættir, fyrirtækjamenning, þekking og einurð starfsmanna. Fyrst og fremst eru það þó væntingar fjárfesta um framtíðina og tiltrú á stjórnendur fyrirtækja sem ráða verðlagningu á markaði. Með skipulegum samskiptum skráðra fyrirtækja við markaðsaðila má auðvelda fjárfestum að meta þessa huglægu þætti, svo hlutabréfaverð endurspegli raunveruleg verðmæti og fjárfestar sjái tækifærin sem kunna að liggja vannýtt í fyrirtækjum.Er slúðrað um þitt fyrirtæki?Almennt eru fjárfestar móttækilegir fyrir skipulegum og markvissum samskiptum sem fyrirtæki stofna til, enda auðveldi þau þeim að skilja viðkomandi félög og meta horfur í rekstrinum á hverjum tíma. Mörg fyrirtæki hafa gert þau mistök að svara eingöngu fyrirspurnum sem berast, bíða við símann og furða sig á því hve markaðsaðilar sýni þeim lítinn áhuga. Mörg fyrirtæki hafa látið hjá líða að rækta samskipti við lykilaðila á markaði, miðla upplýsingum um strauma í sinni atvinnugrein, stefnu félagsins og deila fréttum. Sum skráð fyrirtæki hafa litla sem enga vitneskju um skoðanir markaðarins, slúðrið á kaffistofunum og ranghugmyndunum sem stundum lita viðskipti með hlutabréf.Engar fréttir eru slæmar fréttirMarkaðsaðilar líta svo á, að lítill sýnileiki fyrirtækja sé til marks um að þar sé fátt að gerast, jafnvel þótt uppgjörin séu ágæt. Upplýsingarnar sem eru veittar við hvert ársfjórðungsuppgjör eru að mestu sögulegar og gefa litlar vísbendingar um framtíðina en fjárfestar hafa jú eðlilega mestan áhuga á því sem er framundan. Þær fela hvorki í sér greiningu á þróun markaða, breytingar á samkeppnisumhverfi, né almennar fréttir úr rekstrinum. Fjárfestatengill á að rækta samskiptin við markaðsaðila, stuðla að auknum sýnileika félagsins og trúverðugleika stjórnenda. Hann á að vekja áhuga fjárfesta á fyrirtækinu, starfsemi þess, árangri, vaxtarmöguleikum og stefnu. Hann á að sýna frumkvæði, en ekki sitja og bíða eftir tölvupósti eða símtali. Hann á að þjónusta markaðsaðila og bæta aðgengi þeirra að upplýsingum úr rekstrinum. Hann á að vera faglegur í alla staði, en viðkunnanlegur og fær í mannlegum samskiptum. Það hefur t.d. áhrif að fylgja eftir formlegu fundarboði með persónulegum skilaboðum og eykur líkurnar á mætingu.Fjölmiðlar stóla á lykilfólk á markaðiEf fjárfestatengli tekst vel upp í starfi er líklegt að áhugi fjölmiðla á fyrirtækinu aukist, þar sem fjölmiðlar byggja umfjöllun um atvinnulífið oft á samskiptum við skoðanamótandi fólk á fjármálamarkaði. Ef fyrirtæki sinnir því fólki vel aukast líkurnar á því að talað sé vel um fyrirtækið. Með bættu upplýsingaflæði verða greiningar á félaginu markvissari og áhugi á félaginu meiri. Í því samhengi er rétt að hnykkja á því, að markmiðið með skipulegum samskiptum við markaðsaðila er að stuðla að réttri verðmyndum á hlutabréfum, en ekki að tala þau upp eða niður. Slíkt er enda ekki heimilt, þótt ólíkar skoðanir fjárfesta á virði hlutabréfa sé í raun drifkraftur markaðarins. Yfirverðlagning helst ekki til lengdar og verður jafnvel til þess að markaðurinn hefnir sín þegar fyrirtækið stenst ekki væntingar. Pendúllinn getur þá sveiflast í hina áttina og leitt til undirverðlagningar. Fjármögnun verður kostnaðarsamari og hluthafar tapa verðmætum að óþörfu.Mýkt er mikilvægFáir þekkja þessi fræði betur en markaðsaðilar í stærsta hagkerfi heims, Bandaríkjunum. Í bókinni Winning Investors Over fjallar Baruch Lev um samspil árangurs og ásýndar (e. Performance & Perception) fyrirtækja á bandarískum fjármálamarkaði og vísar í rannsóknir á þúsundum skráðra fyrirtækja. Þar má m.a. finna meðfylgjandi graf, sem sýnir hve harðar upplýsingar úr uppgjörum, þ.e. beinharðar tölur, skýra stóran hluta af hlutabréfaverði. Mjúkar upplýsingar, viðhorf og væntingar, skýra það sem upp á vantar. Hann sýnir líka fram á að framsetning harðra upplýsinga skiptir máli, hvort orðfæri er jákvætt eða neikvætt, hvort góðar fréttir eru í fyrstu málsgrein eða neðar í uppgjörstilkynningum o.s.frv. Og það er athyglisverð staðreynd, að vestra eru viðbrögðin við slæmu uppgjöri minni á föstudögum en á öðrum dögum vikunnar og engu líkara en að markaðsaðilar láti helgina framundan trufla sig.Svona viljum við hafa þaðÞau fyrirtæki sem ná bestum árangri á hlutabréfamarkaði eru þau sem hafa skýra sýn og tekst að útskýra þá sýn fyrir markaðsaðilum með skipulegum og helst skemmtilegum hætti. Reksturinn þarf svo að vera góður, vöxturinn samkvæmt áætlunum og afkoman í takt við væntingar. Það má því í raun segja, að markaðurinn laðist að og styðji við forstjóra sem eru í senn góðir rekstrar- og sögumenn. Menn sem láta ekki stýrast af skammsýni á fjármálamarkaði og freistast ekki til að skera niður í rekstrinum til þess að ná góðu fjórðungsuppgjöri í eitt skipti eða tvö. Menn sem standa við orð sín, geta útskýrt frávik frá fyrri áætlunum, hvert sé stefnt og útskýra að fyrrabragði frá því hvernig brugðist sé við breyttum forsendum í síbreytilegu rekstrarumhverfi. Þannig byggist upp trúverðugleiki sem endurspeglast í virði fyrirtækja. Samskipti eru lykillinn að þessu. Höfundur er sjálfstætt starfandi ráðgjafi í upplýsinga- og samskiptamálum.Greinin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman Skoðun Halldór 27.12.2025 Halldór Skoðun Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Áramótaannáll 2025 Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglugerðir og raunveruleiki rekast á Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugmyndafræðilegur hornsteinn ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hinn falski raunveruleiki Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Sjá meira
Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar