Smá púsluspil fyrir þjálfarann Kristinn Páll Teitsson skrifar 10. október 2018 12:45 vísir/ernir
Helena Sverrisdóttir, ein besta körfuboltakona landsins, er búin að koma sér fyrir í ungverska bænum Ceglédi þar sem hún leikur með körfuboltaliðinu Ceglédi EKK. Er þetta í annað sinn sem Helena leikur í Ungverjalandi eftir að hafa áður leikið með Diósgyőri VTK. Mikil endurnýjun hefur átt sér stað hjá Ceglédi, bæði í aðdraganda tímabilsins þegar Peter Jankovic tók við liðinu og hjá leikmönnum. Ceglédi er með fleiri erlenda leikmenn en nokkru sinni áður, alls fimm. Gerði það liðinu erfitt fyrir að stilla saman strengi sína á undirbúningstímabilinu en þrátt fyrir það var Helena brött þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til hennar. „Þetta hefur gengið svona upp og niður, félagið var ekki alveg tilbúið að fá jafn marga nýja leikmenn og raun bar vitni en þetta er allt saman að koma og við höfum ekki yfir neinu að kvarta persónulega. Við erum búin að koma okkur vel fyrir, fjölskyldan, og þau hafa lagt sig fram við að bjóða okkur velkomin. Litla stúlkan okkar er að slá í gegn og Finnur hefur notið þess að vinna sem styrktarþjálfari liðsins,“ sagði Helena en maður hennar, Finnur Atli Magnússon, sjálfur fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta, fékk starf hjá félaginu. Helena hefur áður leikið undir stjórn Jankovic og þegar hann sýndi því áhuga að fá hana til liðsins var hún strax áhugasöm. „Ég þekki Jankovic mjög vel, hann var þjálfari minn hjá Good Angels í Slóvakíu og við vorum bæði mjög spennt fyrir því að vinna saman á ný. Ég vissi hver hans leikstíll væri og hann hvernig best væri hægt að nýta mína hæfileika.“ Með gamla þjálfaranum fóru sex leikmenn sem höfðu leikið með liðinu undanfarin ár. Þá skipti liðið út tveimur erlendum leikmönnum á dögunum. „Þetta fór á ákveðinn byrjunarreit þegar sex leikmenn fóru með þjálfaranum og það komu fimm erlendir leikmenn inn, fyrir vikið erum við ekki komnar eins langt og æskilegt hefði verið. Það tekur tíma að stilla saman liðið, sérstaklega eftir að tveimur erlendum leikmönnum var skipt út á dögunum,“ sagði Helena en deildin er með afar sérstakar reglur um fjölda erlendra leikmanna inn á hverju sinni. „Ungversku stelpurnar sem urðu eftir í liðinu eru margar svolítið ungar en komnar í stærra hlutverk en þær þekktu áður og það tekur tíma fyrir þær að komast inn í þetta Það er regla hér að það séu allavega tvær heimakonur inná allan tímann og í fyrri hálfleik þarf allavega önnur þeirra að vera undir tvítugu, þetta eru afar sérstakar reglur,“ sagði hún og bætti við: „Við erum með þrjár stelpur úr U20 landsliðinu en ein þeirra er á Ólympíuleikum æskunnar í Argentínu. Það verður gott að fá hana aftur. Þetta er ákveðið púsluspil fyrir þjálfarann að vera með útlendinga en mega ekki spila öllum í einu.“ Liðið er án sigurs í deildarkeppninni og fékk stóra skelli á undirbúningstímabilinu en Helena telur að það séu betri tímar fram undan. „Það hefur ekkert gengið vel körfuboltalega séð, við erum að tapa full stórt og við erum ekki komnar nógu langt. Við áttum flotta spretti í fyrstu umferð þó að það væru margar að spila út úr stöðu og við höfum tapað ansi stórt. Það sama gerðist um helgina, við töpuðum of stórt að mínu mati miðað við frammistöðuna en við vorum að fá sterka leikmenn inn sem eiga að hjálpa okkur,“ sagði Helena og hélt áfram: „Það mun taka tíma að stilla saman liðið en við þurfum að taka stór skref í einu því næsti leikur er á föstudaginn og svo styttist í fyrstu leikina í Evrópukeppninni í lok október.“
Körfubolti Mest lesið Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Fótbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Lík fannst á leikvangi Charlton Enski boltinn Fleiri fréttir „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Sjá meira