Heimilið hefur áhrif á hugarástandið Guðný Hrönn skrifar 9. apríl 2017 16:00 Arna Þorleifsdóttir ásamt dóttur sinni, Ásu Láru Baldvinsdóttur. vísir/gva
Innanhússhönnuðurinn Arna Þorleifsdóttir lumar á góðum ráðum fyrir þá sem eru í vandræðum með að ná fram hlýleika á heimili sínu. Gott skipulag og rétt samspil áferða er meðal annars galdurinn. „Það er mikilvægt að finna fyrir hlýleika á heimili sínu,“ segir Arna sem lumar á góðum ráðum sem gæða heimilið hlýleika. „Það er merkilegt hvað notalegt heimili hefur góð áhrif á hugarástand okkar. Ég hef margoft séð hvernig heimili í jafnvægi gerir fólk ánægðara,“ útskýrir Arna. Það er því vissara að vanda til verka þegar kemur að uppröðun og vali á mublum. „Til að ná fram hlýleika má ekki að vera með of mikið af dóti. Fyrir mér er gott jafnvægi áferðargaldurinn, eitthvað sem gott er að snerta; t.d. sléttflauel og merinóull, fallega unninn viður sem gefur manni góða tilfinningu. Eins er gott að prýða heimilið með einhverju sem ilmar vel.“ Arna segir eitt fyrsta skrefið í að gera heimilið hlýlegt og notalegt sé að hugsa vel út í geymslupláss.„Það þarf að koma öllum hlutunum vel fyrir, sumum í lokaðar hirslur en öðrum fallegum hlutunum á yfirborðinu þar sem þeir njóta sín. Þessar hirslur geta til dæmis verið upphengdir skápar, til að forðast að ofhlaða á gólfin.“ „Svo er gott að blanda saman vösum, greinum, plöntum og afskornum blómum til að fá náttúrulega strauma. Rétt sambland af textíl og efni gerir mikið, sem dæmi þá vinnur leður, flauel, ull og hör vel saman. Í stofu er fallegt að vinna með óbeina lýsingu og hafa vegg, gólf- og borðlampa í hornum. Þannig er hægt að leika sér með lýsinguna eftir því hvernig stuði maður er í. Og ekki má gleyma gardínunum en t.d. fallegar voile-gardínur geta aukið hlýleika,“ segir Arna sem vill að lokum hvetja lesendur til að vera óhræddir við að mála veggi dökka. „Ákveðinn hlýleiki fæst með því að mála veggi í dekkri tónum, t.d. bláum, grænum og gráum tónum.“
Mest lesið Matt Brown er látinn Lífið Áslaug býður í partý Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Mugison þakkar innilega fyrir sig Tónlist Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða í dag Makamál Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Fleiri fréttir Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“