Dætur Gumma Ben í nýju myndbandi Kristínar Ýrar Benedikt Bóas og Stefán Árni Pálsson skrifa 1. desember 2017 12:45 Nýtt myndband frá Kristínu Ýr er frumsýnt hér á Vísi en í því leika meðal annars dætur Gumma Ben og Erla, eiginkona landsliðsþjálfarans Freys Alexandersonar.
Nýtt myndband frá Kristínu Ýr er frumsýnt hér á Vísi en í því leika meðal annars dætur Gumma Ben og Erla, eiginkona landsliðsþjálfarans Freys Alexandersonar. Kannski annan dag er fyrsta lagið sem Kristín Ýr gefur út á solo ferli sínum en hún sýnir á sér nýja hlið því lagið er róleg en kraftmikil ballaða með miklum stíganda. Einhverjir muna eftir Kristínu Ýr úr rapphljómsveitinni Igore sem gaf út plötuna 9 Líf árið 2004. Textinn fjallar um móðir hennar, sem féll frá eftir baráttu við krabbamein. „Textinn er bara einlægur og frekar átakanlegur fyrir fólk sem þekkir til. Og jafnvel líka fyrir þá sem hafa misst einhvern nákominn. Hann fjallar um tilfinningar og upplifun mína í kringum fráfall móður minnar sem greindist með krabbamein í september 2010 og féll frá aðeins tveimur vikum síðar. Og þar sem ég er ömurleg að tjá tilfinningar mínar þegar mikið liggur við þá horfði ég dofin á þennan ömurlega sjúkdóm draga lífið úr mömmu minni og hugsaði hvenær væri rétta augnablikið til að segja henni að mér þætti vænt um hana, sem ég hafði aldrei gert, og alla hlutina sem eðlilegt fólk segir við þá sem því þykir vænt um. En áður en ég kom upp orði dró hún sinn hinsta andadrátt og ég sat hjá henni, þögul sem gröfin. Mín tjáningarleið hefur alltaf verið í textaformi og bundnu máli. Svo þetta lag fæddist í kring um þessa upplifun.“ Hingað til hefur fólk heyrt Kristínu Ýr rappa. Í laginu Kannski annan dag sýnir Kristín Ýr á sér nýja hlið sem söngkona. Hún hóf söngnám hjá CVS (Complete Vocal Studios) árið 2015 og seinna hjá Vocal Art. Í dag er hún í námi hjá CVS sem heitir söngsteypan. Myndbandið er tekið upp af Inga Bauer hjá Kalt Studios. En það er meðal annars tekið upp í Straumi þar sem móðir Kristínar Ýrar fæddist og bjó um tíma. Í því koma fram nokkur brot úr fortíðinni og til að leika Kristínu Ýr sem barn fær hún til lið við sig Kötlu Guðmundsdóttur og Köru Guðmundsdóttur, tvær yngstu dætur Gumma Ben. En Kristín Ýr er góður vinur fjölskyldunnar því hún spilaði fótbolta með móður stelpnanna, Kristbjörgu Ingadóttur og hefur þjálfað elstu dóttir þeirra Karen Guðmundsdóttur. Móður Kristínar Ýrar, Helgu Kristjánsdóttur leikur Erla Súsanna Þórisdóttir, vinkona Kristínar Ýrar. Hún er að sjálfsögðu líka fyrrum fótboltastelpa úr Leikni og Val og er gift Frey Alexandersyni A-landsliðþjálfara kvenna. Kristín Ýr er alls ekki hætt að rappa og er von á meira efni á næstunni í formi R&B með söng og rappi.
Tengdar fréttir Lærði að lífið er núna þegar mamma féll frá Kristín Ýr Bjarnadóttir með endurkomu í tónlistarbransann. 29. nóvember 2017 19:30 Mest lesið Hvað veistu um... fugla? Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Lífið Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Lífið Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Menning Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Sjá meira
Lærði að lífið er núna þegar mamma féll frá Kristín Ýr Bjarnadóttir með endurkomu í tónlistarbransann. 29. nóvember 2017 19:30