Blikakonur skoruðu sex mörk hjá KR og flugu upp í toppsætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. maí 2017 21:10 Blikakonur fagna marki. Vísir/Eyþór
Landsliðskonurnar Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir skoruðu saman fimm mörk í 6-0 stórsigri Breiðabliks á KR í sjöttu umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði þrennu en þetta er fyrsta þrennan á tímabilinu í Pepsi-deild kvenna. Stigin þrjú og stærð sigursins þýða að Blikar komast upp fyrir Þór/KA í toppsæti deildarinnar en norðankonur geta reyndar tekið toppsætið aftur á morgun. Bæði lið eru með fimmtán stig en Blikar eru með fjórum mörkum betri markatölu. Breiðablik hefur þar með unnið fjóra síðustu leiki sína með markatölunni 14-1 eftir að hafa skorað aðeins eitt mark í fyrstu tveimur leikjum sínum, Fanndís Friðriksdóttir skoraði tvö mörk í síðasta leik og tvö mörk í kvöld og það munar mikið um það hjá Blikum að þessi landsliðskona sé búin að finna markaskóna sína og hvað þá þegar bæði hún og Berglind Björg eru farnar að raða inn mörkum. Útlitið er hinsvegar svart hjá Eddu Garðarsdóttur og stelpunum hennar í KR en Vesturbæjarliðið er stigalaust eftir sex leiki og með markatöluna 1-13. Fanndís Friðriksdóttir skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu strax á annarri mínútu leiksins og svo komu þrjú Blikamörk á sex mínútna kafla frá 29. til 35. mínútu. Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði annað markið og svo bættu þær Fanndís og Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir við mörkum. Andrea Rán er búin að skora í þremur leikjum í röð. Berglind Björg bætti við öðru marki sínu eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik og kórónaði síðan þrennu sína á 62. mínútu leiksins. Berglind Björg er nú komin með fimm mörk á tímabilinu. Upplýsingar um markaskorara eru frá fótbolti.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira