Þrír Íslendingar tilnefndir sem þjálfari ársins hjá IHF Kristinn Páll Teitsson skrifar 25. febrúar 2017 14:30 Þórir Hergeirsson gæti hreppt hnossið í fimmta skiptið á ferlinum. vísir/ernir
Alþjóðahandboltasambandið, IHF, birti í dag lista yfir þá tíu handboltaþjálfara sem koma til greina sem þjálfari ársins í karla- og kvennaflokki en Ísland á þrjá fulltrúa á þessum lista. Eru fimm þjálfarar tilnefndir í hvorum flokki en í karlaflokki eru þeir Dagur Sigurðsson, Guðmundur Guðmundsson, Didier Dinart, Christian Berge og Veselin Vujovic tilnefndir. Í kvennaflokki eru Þórir Hergeirsson, Olivier Krumbholz, Kim Rasmussen, Henk Groener og Evgeniy Trefilov tilnefnd. Er Guðmundur tilnefndur eftir að hafa leitt danska landsliðið til sigurs í fyrsta sinn á Ólympíuleikunum í Ríó en í úrslitaleiknum unnu þeir ríkjandi Heimsmeistara Frakklands. Dagur er einnig tilnefndur eftir að hafa stýrt þýska landsliðinu óvænt til sigurs á Evrópumótinu í handbolta í Póllandi en sigur Þýskalands var afar óvæntur þar sem liðið saknaði nokkurra lykilleikmanna á mótinu. Þá vann þýska liðið til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í Ríó undir stjórn Dags en hann hefur nú tekið við liði japanska landsliðsins. Í kvennaflokki er Þórir tilnefndur en hann hefur fjórum sinnum áður verið valinn þjálfari ársins hjá Alþjóðahandboltasambandinu. Undir stjórn Þóris vann norska liðið gullverðlaunin á EM í desember án þess að tapa leik á mótinu en þurfti að sætta sig við bronsverðlaun á Ólympíuleikunum. Engir íslenskir leikmenn eru tilnefndir að þessu sinni en í karlaflokki eru liðsfélagar Nikola Karabatic, Mikkel Hansen og Sander Sagosen frá PSG og Andreas Wolff og Domagoj Duvnjak, leikmenn Kiel tilnefndir. Í kvennaflokki eru þær Nora Mörk frá Noregi, Christina Neagu frá Rúmeníu, Nycke Groot frá Hollandi, Isabelle Gullden frá Svíþjóð og Kari Grimsbo frá Noregi tilnefndar.
Handbolti Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Ungverjaland 24-23 | Ísland fer með tvö stig í millirðil Sport Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Utan vallar: Ég get ekki meir Handbolti „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti Fleiri fréttir Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Vitum ekki um tvo fyrstu mótherjana fyrr en annað kvöld Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð „Núna er allt betra“ Logi Geirs hefði verið sáttur með svona „hárgreiðsluskot“ „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ „Ég hef prófað þetta og þetta virkar“ „Bara vá, ég er svo glaður“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Tölfræðin á móti Ungverjum: Viktor lokaði í átta mínútur þegar ekkert gekk Færeyingar úr leik og Danir stigalausir í milliriðil Svartfellingar hjálpuðu alls ekki Færeyingum Kemst loksins á leik og styður Ísland til sigurs Mikil trú á íslenskum sigri meðal stuðningsmanna Íslands Viktor Gísli líka frábær í Fantasy Utan vallar: Ég get ekki meir „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ „Sáru töpin sitja í okkur“ „Örugglega orðinn hundleiður á umræðunni“ „Það er mjög slæm minning“ Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Alfreð mætti með sína menn klára í leik upp á líf eða dauða „Það trompast allt þarna“ Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Austurríkismenn hjálpuðu Alfreð Dagur fagnaði sigri á móti Faxa EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði „Lífshættulegt“ gólf losnaði í einni af EM-höllunum Einar í ræktina en fær ekki að æfa með hópnum Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Sjá meira