Fer á skíði á stórafmælinu Stefán Þór Hjartarson skrifar 12. janúar 2017 10:00 Ásta Möller heldur upp á daginn í skíðabrekkunni. Vísir/Vilhelm „
Ég og fjölskyldan erum hér á leiðinni til Akureyrar, við ætlum að nota þessa daga í að fara á skíði. Við vonumst til að það verði gott veður svo við getum átt góðar stundir fram á sunnudaginn. Síðan á eiginmaðurinn líka sextugsafmæli eftir fjórar vikur og þá förum við á skíði til Ítalíu,“ segir Ásta Möller, afmælisbarn dagsins, en hún er sextug í dag og ætlar að halda upp á það norðan heiða í brekkum Hlíðarfjalls. Blaðamaður nær henni þar sem hún er á leiðinni yfir Öxnadalsheiðina og hún segir veðrið lofa ansi góðu.Þú ert mikil skíðamanneskja, heyri ég. „Ég stunda skíði en er nú enginn snillingur, ég kemst alveg ágætlega niður allar brekkur. Við höfum öll mikla ánægju af þessu og förum oft á skíði.“Verður engin veisla í tilefni dagsins? „Nei, ég eiginlega tók það út þegar ég varð fimmtug. Þegar ég varð fimmtug, þá var ég nýbúin í prófkjöri, og ég gerði heilmikið úr því. Ég hélt upp á það í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi og bauð heljarmörgum til veislu, ég held að það hafi mætt fimmtán hundruð manns. Þarna voru pólitískir samherjar og mótherjar, maður missti sig alveg. Það var alveg svakalega skemmtilegt – það var dansað til fjögur um nóttina. Það var hljómsveit Fríkirkjunnar í Hafnarfirði sem hélt uppi fjörinu þarna. Þetta var eftirminnilegasta afmælið mitt og alveg ótrúlega mikið fjör. Ég held að það hafi allir mætt sem ég bauð, þetta var auðvitað í byrjun árs, það er greinilega besti tíminn, þá er fólk ekki farið til útlanda og er komið heim eftir jólin, þannig að fólk tók bara tjúttið.“Þannig að þú þarft eiginlega ekkert að halda upp á afmælið aftur? „Nei, það var eiginlega mín niðurstaða, að ég hefði þarna gert þetta fyrir lífstíð.“En ertu mikið afmælisbarn svona vanalega? „Nei, ekkert sérstaklega, mér þykir gott að vera bara með fjölskyldunni. Við erum með börn og barnabörn sem verða með okkur núna fyrir norðan. Á milli stórafmæla er ég ekkert mikið að hafa fyrir þessu – býð yfirleitt stórfjölskyldunni bara í súpu á afmælisdaginn.“ Við óskum Ástu til hamingju með daginn og megi hún komast heil úr brekkunum.
Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Sjá meira