Ókeypis fræðslukvöld um þunglyndi 28. mars 2017 11:00 Sálfræðingurinn Guðríður Þóra Gísladóttir mun fjalla um þunglyndi hjá börnum og unglingum á morgun miðvikudag. MYND/VILHELM
Sálfræðingafélag Íslands stendur fyrir opnum fræðslufyrirlestri á morgun, miðvikudag, kl. 20.30-22 á Hilton Reykjavík Nordica undir heitinu Hvað er með þetta þunglyndi? Fyrirlesturinn er haldinn í tilefni Sálfræðiþings, sem hefst á morgun, og Alþjóða heilbrigðisdagsins. Þar munu sálfræðingarnir Guðríður Þóra Gísladóttir og Helgi Héðinsson fjalla um helstu einkenni þunglyndis hjá börnum og fullorðnum og kynna árangursríkar leiðir til að ná tökum á því. Einnig gefa þau hagnýt ráð sem geta dregið úr þunglyndi og bætt líðan og leiðbeina um hvert hægt er að leita þegar frekari aðstoðar er þörf. Í fyrirlestri sínum á morgun ætlar Guðríður Þóra Gísladóttir að fjalla um þunglyndi hjá börnum og unglingum. „Ég mun fjalla um helstu einkenni eftir þroska og aldri, áhættuþætti, hvenær einkenni eru þess eðlis að þörf er á því að leita aðstoðar og þá hvernig aðstandendur geti brugðist við, bæði hvað þeir geta gert sjálfir og hvert er hægt að leita eftir aðstoð.“Fræðsla skiptir máli Aðspurð um árangursríkar leiðir til að ná tökum á þunglyndi barna segir hún minna hægt að vinna beint með hugræna þáttinn, áherslan verði alltaf meiri á atferlisþáttinn. „Eftir því sem barnið eldist er hægt að vinna meira með hugræna þáttinn og þá er helst mælt með hugrænni atferlismeðferð. Oft þarf einnig lyf með en þó alltaf í samráði við lækni. Sem forvörn er mikilvægt að skapa umhverfi þar sem barnið og unglingurinn finnur að hann getur tjáð sig og það sé traust í samskiptum. Einnig er mikilvægt að aðstoða barnið, og ekki síður unglinginn, við að halda góðri rútínu í kringum svefn og mataræði og að það sé virkt í íþróttum og tómstundum. Viðvörunarbjöllur ættu að klingja t.d. ef unglingurinn missir skyndilega áhuga á öllum tómstundum, einangrar sig, sefur illa o.s.frv. Þá er mikilvægt að grípa inn í.“ Helgi Héðinsson mun hins vegar fjalla um helstu einkenni þunglyndis hjá fullorðnum og segist ætla að leggja mesta áherslu á hagnýt ráð í baráttunni við þunglyndi. Hann segir ýmsar árangursríkar leiðir fyrir fullorðna til að ná tökum á þunglyndi. „Fyrsta skrefið er að afla sér fræðslu um þunglyndi. Samkvæmt klínískum leiðbeiningum er mælt með hugrænni atferlismeðferð sem fyrsta kosti þar sem sú meðferð hefur sýnt mestan árangur í rannsóknum. Á almennari nótum þá er mikilvægt að fólk sem líður illa opni á líðan sína fyrir einhverjum sem það treystir, hvort sem það er aðstandandi eða fagaðili. Svo þarf að byrja að fikra sig í þá átt að rjúfa vítahring þunglyndis.“Helgi Héðinsson sálfræðingur heldur erindi á morgun.Aukinn áhugiHrund Þrándardóttir, formaður stjórnar Sálfræðingafélags Íslands, er fundarstjóri. Þetta er í annað sinn sem félagið stendur fyrir fræðslufyrirlestri í tengslum við árlegt Sálfræðiþing sem nú er verið að halda í níunda sinn. „Ástæða þess að ákveðið var að bjóða upp á svona viðburði tengda þinginu er mjög vaxandi áhugi almennings á sálfræði og geðheilbrigðismálum sem eru ekki lengur sama tabú og áður fyrr. Félagið vill stuðla að enn meiri umræðu um þessi mál í samfélaginu og gefa fólki kost á að njóta góðrar fræðslu fagfólks. Aðgengi fólks að viðeigandi meðferð við mörgum geðsjúkdómum, vegna takmarkaðs aðgengis að sálfræðiþjónustu, er því miður ekki nógu gott þó það fari heldur batnandi. Aukin umræða getur verið liður í að bæta úr því og oft er það að tala um hlutina eða fá fræðslu um þá, fyrsta skrefið varðandi það að leita sér hjálpar.“ Fyrirlesturinn er á morgun, miðvikudag, á Hilton Reykjavík Nordica og stendur yfir frá kl. 20.30-22. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Mest lesið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Fleiri fréttir Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Sjá meira