Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 15. nóvember 2017 18:22 Brotið átti sér stað í júlí árið 2015 þegar ákærði var 17 ára. Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 19 ára karlmann í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir að nauðga stúlku í júlí árið 2015. Brotið átti sér stað á þáverandi heimili ákærða og var stúlkan gestkomandi í húsinu. Hún hafði sofnað á rúmi hans og gat ekki spornað við verknaðinum sökum svefndrunga og ölvunar, að því er segir í dómi héraðsdóms. Ákærði, sem var 17 ára gamall þegar brotið átti sér stað, neitaði sök. Hann lýsti því að hann og stúlkan hafi farið saman upp í rúm á heimili hans. Þau hafi bæði afklæðst og haft samfarir og bæði verið drukkin. Hann hafi spurt hana hvort það væri í lagi og hún svarað því játandi. Stúlkan lýsti því að hún muni takmarkað eftir brotinu þar sem hún hafi verið mjög ölvuð. Hún mundi eftir því að hafa sagt nei við ákærða þegar hann ætlaði að afklæða hana og þegar hann hafi haft við hana samræði. Hún sagðist ekki hafa getað spornað við verknaðinum þar sem hún hafi frosið og verið með skerta meðvitund vegna ölvunar.Framburður ákærða ótrúverðugur Héraðsdómur mat framburð stúlkunnar trúverðugan, enda í meginatriðum á sama veg hjá lögreglu og fyrir dómi. Ástand hennar í kjölfar brotsins hafi einnig gefið til kynna að eitthvað alvarlegt hefði komið fyrir, en brotið var tilkynnt seinna um nóttina. Framburður ákærða þótti hins vegar ekki trúverðugur. Fyrst hafi hann leynt því hvað gerðist og það hafi ekki verið fyrr en gengið var á hann að hann viðurkenndi að hafa haft samræði við stúlkuna. Hann skýrði slitrótt frá atvikum málsins við yfirheyrslu lögreglu en fyrir dómi var skýrsla hans mun ítarlegri og hann hafði bætt nokkru í. Sem fyrr segir var ákærði dæmdur í tveggja ára fangelsi. Í ljósi aldurs hans þegar brotið var framið og þess að meðferð málsins dróst töluvert var hluti refsingarinnar skilorðsbundinn, eða 21 mánuður. Er honum einnig gert að greiða stúlkunni eina og hálfa milljón í skaðabætur. Dóminn má lesa í heild sinni hér.Uppfært 16. nóvember: Nafn mannsins sem dæmdur var sekur í málinu hefur nú verið fjarlægt þar sem dómur Héraðsdóms Reykjavíkur hefur verið uppfærður og nafn hans fjarlægt úr dómnum. Var það ekki í samræmi við reglur dómstólaráðs um nafnleynd að birta nafn mannsins í dómnum þar sem hann var undir 18 ára aldri þegar hann framdi brotið sem hann var dæmdur fyrir. Hefur fréttin því verið uppfærð í samræmi við það.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira