Tony Blair segir afstöðu til Brexit mikilvægari en flokkadrætti Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. apríl 2017 16:50 Tony Blair, var forsætisráðherra Bretlands, á árunum 1997-2007. Vísir/EPA
Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hvetur breska kjósendur til þess að kjósa ekki þingmenn sem „munu styðja Brexit sama hvað það kostar,“ óháð því hvaða flokki þeir tilheyra. Kosningar fara fram í landinu í júní. Blair, sem var leiðtogi Verkamannaflokksins frá árinu 1994-2007, segir í samtali við BBC, að Brexit sé mikilvægara en flokkar. Íhaldsflokkurinn muni að öllum líkindum sigra í kosningunum, en Verkamannaflokkurinn þurfi að vera öflugur til þess að geta veitt Theresu May, aðhald. Blair segir að stefna May í Brexit-málinu sé „algjörlega óraunhæf“ og að það sé augljóst að hægri vængur Íhaldsflokksins hafi hve mest um stefnu flokksins að segja í Brexit. Þá segir Blair að stefna Verkamannaflokksins í Brexit-málinu sé óljós og að „hann sé ekki alveg viss hver stefna flokksins sé.“ Það þurfi að skerpa á stefnunni. „Punkturinn snýst þó ekki um það hvort að ég sé í Verkamannaflokknum, eða ekki í Verkamannaflokknum, eða hvort um sé að ræða íhaldsmenn, eða frjálslynda demókrata. Ég mun vinna með hverjum sem er til þess að koma þessum rökum til kjósenda.“ Hann segir að Brexit hafi haft djúpstæð áhrif á sig og að hann hafi verið nálægt því að taka þátt í stjórnmálum á nýjan leik vegna málsins. Blair steig af stóli forsætisráðherra árið 2007, eftir 10 ár í embættinu og hætti þá þátttöku í stjórnmálum.
Brexit Kosningar í Bretlandi Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira