Þegar besti vinur Baldvins Z kom út úr skápnum: „Enduðum bara í sleik og fögnuðum“ Stefán Árni Pálsson skrifar 10. janúar 2017 13:15 Falleg frásögn.
Hjartasteinn er fyrsta kvikmynd leikstjórans Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd en kvikmyndin hefur sópað til sín alþjóðleg verðlaun undanfarna mánuði. Hjartasteinn fjallar um sterka vináttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina. Tökur fóru fram haustið 2015 á Borgarfirði eystri, Seyðisfirði, í Vopnafirði og Dyrhólaey. Sérstök forsýning verður í Háskólabíói í kvöld og verður myndin frumsýnd 13. janúar. Framleiðendur myndarinnar hvetja Íslendinga til að segja frá æskuminningum sínum á Twitter undir kassamerkinu #hjartasteinn eins og sjá má hér að neðan. Kvikmynd á eflaust eftir að vekja upp margar æskuminningar hjá áhorfendum og að því tilefni fengu framleiðendur myndarinnar til sín nokkra þjóðþekkta einstaklinga til að rifja upp sínar æskuminningar en að þessu sinni er komið að leikstjóranum Baldvini Z sem segir frá eftirminnilegu atviki úr æsku. „Það er ótrúlegt að hugsa til þess að einn af mínum bestu æskuvinum sé ég nánast ekkert í dag en við vorum saman upp á dag í tíu ár,“ segir Baldvin og bætir við að þeir hafi hreinlega gert allt saman og uppgötvað allt saman. „Stelpur, bjórinn og sígaretturnar, allt sem unglingurinn allstaðar gerir. Hann tók rosalega stórt skref á unglingsaldri þegar hann sagði mér frá því að hann væri samkynhneigður. Ég man hvað það var erfitt fyrir hann að segja mér þetta og ég var svona einn af þeim fyrstu sem hann sagði. Tíðarandinn var allt öðruvísi á þessum tíma og þetta eiginlega endaði með því að við vorum í partýi og ég var svo ánægður að heyra þetta, því þetta staðfesti það sem ég hafði hugsað og haldið allan þennan tíma. Ég og hann enduðum bara í sleik og fögnuðum þessu.“
Mest lesið Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna Lífið „Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búin að senda þessa línu“ Makamál Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Lífið „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ Lífið 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Lífið Hugsar oft til fyrstu ástarinnar vegna ástandsins í Íran Lífið Gallstasi á meðgöngu: „Ég grátbað um að ég yrði sett af stað“ Áskorun Þórdís Lóa um Júró-umfjöllun: „Hvers vegna þessi þögn?“ Lífið „Það er einmanalegt að missa móður“ Lífið Ætlar hvorki að hætta að vinna né opna kaffihús Lífið Fleiri fréttir Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Þórdís Lóa um Júró-umfjöllun: „Hvers vegna þessi þögn?“ Vandamálaráðuneytið únefndi hinn fimmtán ára Viðar til sigurs Hugsar oft til fyrstu ástarinnar vegna ástandsins í Íran Krakkatían: Celebs, sumar og forseti Íslands Sveitarstjóri og sauðfjárbóndi fóru á kostum Hvetur fólk til að nota sólarvörn eftir krabbameinsgreiningu Metmæting á tískusýningu útskriftarnema LHÍ Mynd ársins af palestínskum flóttamanni Ætlar hvorki að hætta að vinna né opna kaffihús Milljónir hafa horft á stikluna fyrir Snertingu Karl konungur snýr aftur úr veikindaleyfi Fréttatía vikunnar: Þyrlur, forsetaframbjóðendur og skemmdarverk „Það er einmanalegt að missa móður“ Trúlofuðust á gjörgæslunni eftir bílslys á Íslandi Ellý snýr aftur vegna fjölda áskorana Ætlað að auka umræðu og sýnileika leiðsöguhunda Nýtt upphaf Margrétar: „Búin að heita þessu nafni í rúma viku“ Borgarstjóri og frú tóku veislustjórnina að sér Fágæt og falleg eign við Flókagötu Aron passaði varla inn í bílinn Nefnd í höfuðið á tveimur mikilvægum konum í lífi þeirra Grínari selur íbúð í Vesturbænum Sophia Bush kemur út úr skápnum „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Ebba Katrín valin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar Sjá meira