Lífið

Ágústa Eva og Aron eignuðust stúlkubarn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi mynd var tekin af parinu þegar Ágústa var komin 38 vikur á leið.
Þessi mynd var tekin af parinu þegar Ágústa var komin 38 vikur á leið.
Leik-og söngkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir og handboltamaðurinn Aron Pálmarsson eignuðust í gær stúlku.

Þetta kemur fram á vefsíðu DV. Þetta mun vera fyrsta barn Arons en fyrir á Ágústa Eva son sem fæddist árið 2011.

Aron Pálmarsson gekk á dögunum í raðir Barcelona og mun fjölskyldan líklega búa í Katalóníu.

Stúlkan vó 3880 grömm og 51 sentímetra. Lífið óskar parinu innilega til hamingju.

Baby's knocking... Little ms Prinsess Palmarsson. #aronpalmarsson 38vikur. @aronpalm

A post shared by Agusta Eva Official (@agustaeva) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×