Lífið

Hallgrímur og Þorgerður fengu stúlku í jólagjöf: „Fögur, spræk og hárprúð!“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þorgerður og Hallgrímur saman árið 2015.
Þorgerður og Hallgrímur saman árið 2015. vísir/andri marinó
„Jólin komu snemma í ár, eða nákvæmlega fimm mínútur yfir miðnætti mánudaginn 18. desember. Þá mætti ungfrú fimmtán merkur til leiks og skapaði þegar heilar þúsund merkur af hamingju,“ segir rithöfundurinn Hallgrímur Helgason í stöðufærslu sinni á Facebook en Þorgerður Agla Magnúsdóttir og hann eignuðust stúlkubarn í vikunni.

„Svona líka fullkomin, fögur, spræk og hárprúð (!) Móður og barni heilsast vel og gamli biður að heilsa, hann sást síðast í skýjunum.“










Fleiri fréttir

Sjá meira


×