Opinskáum dagbókum flett Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 12. desember 2017 09:15 "Ólafur var frábær penni og sem betur fer var auðvelt að lesa skriftina hans,“ segir Þorsteinn. Vísir/Anton Brink
Að hafa svo mikið upp úr lífinu sem auðið er“: Ólafur Davíðsson og hinsegin rými innan Lærða skólans á 19. öld, nefnist erindi sem Þorsteinn Vilhjálmsson, þýðandi og fræðimaður, heldur í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins í dag og hefst klukkan 12.05. Þorsteinn er að búa dagbækur Ólafs til útgáfu og í fyrirlestrinum ætlar hann að tala um samband hans við samnemanda sinn í Lærða skólanum, Geir Sæmundsson (1867-1927) úr Hraungerði í Flóa, sem síðar varð prestur á Akureyri og enn síðar vígslubiskup í Hólabiskupsdæmi. „Ólafur var opinskárri í dagbókum sínum um menn, málefni og ekki síst sjálfan sig en yfirleitt allir hans samtíðarmenn. Hann segir í byrjun að hann muni ekki skrifa um veðurfar, sem var hið týpíska umfjöllunarefni flestra dagbókarskrifara, hins vegar muni hann skrifa um veðurfarið í lífi sínu. Þar skiptust sannarlega á skin og skúrir,“ segir Þorsteinn og bætir við: „Ólafur var frábær penni og sem betur fer var auðvelt að lesa skriftina hans.“ Dagbókarskrifin voru stopul hjá Ólafi, að sögn Þorsteins. „Hann skildi eftir sig tvö handrit, annað þeirra töluvert lengra en hitt. Það er varðveitt hér á Landsbókasafninu og nær yfir árin 1881 og 1882. Hitt er frá 1883 til 1884 og er geymt úti í Kaupmannahöfn, enda er það frá árum hans þar. Ég fékk þá bók ljósritaða þannig að ég náði að lesa hana líka.“ Þorsteinn ætlar að horfa víðar í sínum fyrirlestri en á ástalíf Ólafs. Hann ætlar að fókusera á hinsegin rými í Reykjavík á þessum tíma. Þar á hann við kringumstæður sem gáfu fólki visst frelsi og svigrúm. „Ég tel að Lærði skólinn, sem nú er Menntaskólinn í Reykjavík, hafi haft mikla sérstöðu og þar hafi hugsanlega verið opnað á myndun öðruvísi kynferðislegra tengsla en annars leyfðust í íslensku sveitasamfélagi. Þar komust piltar til dæmis í kynni við gríska texta frá fornöld þar sem jákvæðar myndir af samkynja ástum koma fyrir,“ segir hann. „Svo var Lærði skólinn heimavistarskóli, piltarnir sváfu þar uppi á svokölluðu Langalofti. Ólafur og Geir bjuggu reyndar ekki þar heldur leigðu þeir herbergi úti í bæ og þar hefur kannski verið enn minna eftirlit,“ bendir hann á. Geir var að byrja í Lærða skólanum þegar Ólafur var að ljúka námi þar því á þeim var fimm ára aldursmunur. „Ólafur var tvítugur en Geir var fimmtán ára þegar þeirra samband hófst. Ólafur fór út til Kaupmannahafnar til náms eftir Lærða skólann og skildi Geir eftir. Þeir voru þó síðar samtímis nokkur ár í Kaupmannahöfn en engar heimildir eru til um samband þeirra þar,“ lýsir Þorsteinn. „Það kom þó í hlut Geirs sem prests að jarðsyngja þennan fyrrum ástmann sinn, eftir að Ólafur lét lífið í Hörgá, aðeins 41 árs að aldri. Þetta var drama.“
Menning Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Fleiri fréttir Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira