Rashford í aðalhlutverki í sigri Englendinga á Slóvökum | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Englendingar fóru langt með að tryggja sér sæti á HM í Rússlandi með 2-1 sigri á Slóvökum á Wembley í F-riðli undankeppninnar í kvöld.

Marcus Rashford var í aðalhlutverki hjá enska liðinu sem hefur nú unnið 12 heimaleiki í röð í undankeppni HM og EM.

Stanislac Lobotka kom Slóvakíu yfir strax á 3. mínútu en Eric Dier jafnaði metin átta mínútum fyrir hálfleik með góðu skoti eftir hornspyrnu Rashfords.

England var mun sterkari aðilinn í seinni hálfleik eftir misjafna frammistöðu í þeim fyrri.

Rashford skoraði sigurmark Englendinga með skoti fyrir utan teig á 59. mínútu. Þetta var hans annað mark fyrir enska landsliðið.

England er með 20 stig á toppi F-riðils, fimm stigum á undan Slóvakíu sem er í 2. sætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira