Bjórinn er betri ef maður á hann skilinn Guðný Hrönn skrifar 13. júlí 2017 09:30 Bjór er í aðalhlutverki í smáforritinu sem Jón Páll var að gefa út. vísir/STEFÁN
Jón Páll Leifsson var að gefa út smáforrit (app) sem reiknar út hversu mikinn bjór þú vinnur þér inn með réttu mataræði, hreyfingu og góðverkum. Bjórinn er betri ef maður á hann skilinn að sögn Jóns. „Smáforritið kom út á laugardaginn og heitir Beer Converter. Það reiknar út hversu mörgum kaloríum þú sleppir eða brennir og útlistar það í kaloríum í bjór. Eins getur þú unnið þér inn bjór með alls kyns góðverkum eða afrekum, þótt þau séu ekki beinlínis kaloríutengd,“ segir Jón Páll. „Þetta smáforrit er búið að vera gæluverkefni hjá mér í dálítinn tíma. Þetta byrjaði bara sem brandari sem gekk svo kannski aðeins of langt, alveg inn í App Store og Playstore.“ Þetta er fyrsta smáforritið sem Jón Páll gerir en Loftfarið sá um að forrita appið og Finnbogi Erlendsson sá um útlitshönnunina. „Ég var sem betur fer ekki einn í þessu. Ég á hugmyndina og skrifa allan texta en Loftfarið og Finnbogi hafa verið með mér í þessu. Og þetta hefur gengið vel og appið hefur hitt í mark hjá þeim sem hafa prófað það.“ Jón Páll segir Beer Converter ekki vera hefðbundið heilsuforrit. „Það er til alveg haugur af smáforritum sem telja kaloríur, sem eru oftar en ekki með svolítið vondar fréttir, þau segja manni hvað eru margar kaloríur í hinu og þessu. En Beer Converter færir eiginlega bara góðar fréttir og segir notandanum hversu marga bjóra hann á skilda.“ Eins og áður sagði metur smáforritið þrjá hluti; mat, líkamsrækt og góðverk eða afrek og mælistikan er bjórfjöldi. Spurður út í hvernig góðverkin virka segir Jón Páll: „Góðverkin eru meira byggð á mínu persónulega þverfaglega mati. Það er ekki háð kaloríum. Þegar góðverkin eru færð inn í smáforritið er mikilvægt að hafa í huga bæði aðstæður og hvata,“ segir Jón Páll og tekur dæmi: „Ef þú gefur mömmu þinni blóm þá er fyrsta spurningin: „Er þetta á mæðradaginn?“ Næsta spurning er svo: „Vantar þig greiða frá henni?“ Þannig að ef þú ert að gefa mömmu þinni blóm á mæðradaginn og þú þarft að fá bílinn hjá henni lánaðan, þá er þetta ekkert merkilegt og þú átt engan bjór skilinn,“ segir Jón Páll og hlær. „Þú ert sem sagt alltaf spurður tveggja lykilspurninga þegar þú skráir afrek eða góðverk. Þær spurningar skera úr um hversu merkilegt afrekið er.“ Meira gaman en gagnEf þú hjálpar vini þínum að flytja búslóð, píanó meðtalið, upp eða niður þrjár hæðir eða meira áttu skilið heila sex Corona Extra bjóra.Aðspurður fyrir hvern Beer Converter sé helst segir Jón Páll það vera fyrir alla sem drekka bjór. „Þetta app er bara til gamans gert og maður þarf ekki að vera bjór-spekúlant til að nota það. Ég er sjálfur enginn bjórspekúlant þó að mér finnist bjór góður. „Þú getur alveg notað þetta sem hálfgert heilsuapp en þetta er meira gaman heldur en gagn. En þó er smá gagn í þessu. Annars held ég að bjór hafi verið hafður fyrir rangri sök í gegnum tíðina, hann er ekki svo rosalega kaloríusekur, miðað við margt annað,“ segir Jón Páll sem er búinn að stúdera mikið kaloríufjölda í bjór í samanburði við kaloríufjölda í ýmsum mat.„Ef þú borðar tvær Oreo-kexkökur þá ertu með álíka mikið af kaloríum og í Bud Light-bjór.“En er bjór betri ef maður á hann skilinn? „Já, svo sannarlega! Ef þú ert búinn að vinna almennilega fyrir honum þá verður hann miklu betri. Og alveg eins og í Dýrunum í Hálsaskógi, ef þú stelur honum þá er hann ekki góður,“ segir Jón og skellir upp úr.
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Britney farin í meðferð Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira