Lögmenn greiði fyrir meðmæli frá föngum Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. júlí 2017 11:30 Litla-Hraun. Vísir/Eyþór
Lögmenn sem vilja komast á meðmælalista Afstöðu, félags fanga, þurfa að greiða fyrir það „hóflegt gjald.“ Siðareglur lögmanna kveða á um að þeim sé óheimt að greiða fyrir það að fá til sín skjólstæðinga. Í auglýsingu frá félaginu segist Afstaða lengi hafa haldið úti lista yfir þá lögmenn sem „félagið þekkir og getur með góðri samvisku gefið meðmæli þegar kemur að sakamálum.“ Öllu máli skipti fyrir fanga að hafa lögmann sér við hlið sem er traustins verður og reynsla Afstöðu sýni að það séu ekki endilega „stjörnulögmenn“ sem eru best til þess fallnir að gæta hagsmuna félagsmanna þeirra.Lögmenn geta sótt um að komast á þennan meðmælalista og hefur stjórn félagsins ákvörðunarvald um hverjir rata á hann. Gerð er krafa um lögmenn kynni sig og sína sérþekkingu auk þess að veita „loforð um að sinna félagsmönnum Afstöðu vel,“ eins og það er orðað í auglýsingu félagsins. Fái þeir sæti á listanum þurfa þeir svo að greiða hóflegt gjald til félagsins.Reimar Pétursson er formaður Lögmannafélagsins.Vísir/AntonSiðareglur brotnar? Í 33. grein siðaregla lögmanna segir að lögmanni sé óheimilt að greiða öðrum aðila sérstaka þóknun fyrir að láta hann vísa skjólstæðingum til sín. Lögmönnum sé að sama skapi óheimlt að áskilja sér úr hendi annars lögmanns eða annars aðila sérstaka þóknun fyrir að vísa skjólstæðingi til lögmannsins. Í samtali við Vísir segir formaður Lögmannafélags Íslands, Reimar Pétursson, að þessar greiðslur hafi ekki komið til umfjöllunar í félaginu. Hann eigi því erfitt með að leggja mat á það hvort þær kunni að stangast á við siðareglur lögmanna. Hann útilokar ekki að félagið taki málið til umfjöllunar. Reynt var að ná í Guðmund Inga Þóroddson, formann Afstöðu, vegna málsins, bæði í gegnum síma og tölvupóst, en án árangurs.
Mest lesið Telja Ísraelsher hafa umkringt bát Thunberg Erlent Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Innlent Forsetaframbjóðandi skotinn í höfuðið Erlent Grafalvarlegt ástand í LA: „Þetta eru einhverjar fasískar leikaðferðir“ Erlent Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Innlent Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Innlent Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Innlent Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Innlent Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Innlent Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Innlent Fleiri fréttir Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Menningarveisla í allt sumar á Sólheimum Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skilaði 800 milljónum til ríkissjóðs Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Hermenn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Evrópusambandið, rétttrúnaður og endurskoðun veiðiráðgjafarinnar Þrír reyndu að komast undan lögreglu Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Umræðu um bókun 35 aftur frestað Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Norðurlandamót í Bridge á Laugarvatni alla helgina Yfirfara þurfi öryggismál við Brúará Enn eitt banaslysið í Brúará, landvinningar lúsmýs og þungarokkshátíð Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Konan sem féll í Brúará er látin Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Klara Baldursdóttir er látin Sjá meira