Innlent

Meðlagsgreiðendur eignalausir og í skuld

Snærós Sindradóttir skrifar
Á Íslandi er greitt meðlag með rúmlega 10 þúsund börnum á ári.
Á Íslandi er greitt meðlag með rúmlega 10 þúsund börnum á ári. vísir/vilhelm
Ríflega fjórðungur meðlagsgreiðenda, um 27 prósent, hefur farið í gegnum árangurslaust fjárnám á síðastliðnum fjórum árum vegna meðlagsskulda sinna. Af 11.716 meðlagsgreiðendum á Íslandi höfðu ríflega 3.200 farið í gegnum árangurslaust fjárnám um síðustu áramót. Meðlagsgreiðslur hækkuðu um síðustu áramót og eru nú ríflega þrjátíu þúsund krónur á hvert barn.

„Til þess að við reynum fjárnám þarf viðkomandi að vera í vanskilum um nokkurt skeið. Hann fær greiðsluáskorun í framhaldinu og þegar búið er að birta hana fær hann fimmtán daga til að gera upp áður en farið er í fjárnám,“ segir Bragi R. Axelsson, forstöðumaður starfsstöðvar Innheimtustofnunar sveitarfélaga.

Sé farið í árangurslaust fjárnám þýðir það að viðkomandi hefur því verið í töluverðum vanskilum, og á annaðhvort ekki eignir sem geta gengið til tryggingar skuldinni, eða eignir viðkomandi eru yfirveðsettar. Samkvæmt lögum um fjárnám getur sá sem fer fram á fjárnámið farið fram á gjaldþrotaskipti hjá þeim sem ekki getur staðist slíka kröfu. Allir þeir sem fara í gegnum árangurslaust fjárnám fara á skrá hjá CreditInfo og er þeim upplýsingum komið á framfæri við banka og aðrar lánastofnanir. Slíkar upplýsingar geta til dæmis komið í veg fyrir að viðkomandi fái lán hjá bönkum í allt að fjögur ár.

„Það er samt hægt að semja við okkur í öllum tilfellum. Á síðasta ári voru 2.314 umsóknir um ívilnun en það eru þeir sem óska eftir samningi við stofnunina um greiðslur,“ segir Bragi.

Heildarafskriftir meðlagsskulda árið 2016 námu 277,6 milljónum króna. Afskriftir stafa af ívilnunarsamningum, fyrningum skulda, gjaldþrotum eða andláti greiðenda. Á síðasta ári fengu 142 karlar og 12 konur afskrifaða hluta eða heild meðlagsskuldar sinnar.

„Í þeim hópi sem óskar eftir samningi við stofnunina um greiðslur geta verið sömu einstaklingar oft, í einhverjum tilfellum. Fólk getur samið í skemmri tíma og lengri tíma.“

Á síðasta ári var stofnuninni gert að innheimta 3,6 milljarða króna af meðlagsgreiðslum. 3,2 milljarðar fengust upp í skuldirnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×