Gerðu 9000 blómvendi bara fyrir konudaginn Jóhann K. Jóhannsson skrifar 19. febrúar 2017 15:34
Konudagurinn er í dag og eflaust margir sem ætla að hylla konur með ýmsum hætti í tilefni dagsins. Garðyrkjustöðin Espiflöt framleiddi níu þúsund blómvendi bara fyrir daginn í dag. Konudagurinn markar upphaf Góu og ber alltaf upp á sunnudag í átjándu viku vetrar. Á árum áður minntust bændur og eiginmenn húsfreyjunnar með því að fagna Góu, en hún færir með sér vaxandi birtu og innganginn að vorinu. Dagurinn hefur alltaf verið í hávegum hafður og enn þann daginn í dag nýta menn daginn til þess að koma konum í lífi sínu á óvart. Axel Sæland er framkvæmdastjóri Garðyrkjustöðvarinnar Espiflöt á Selfossi en hann segir konudaginn einn stærsta dag ársins á blómamarkaði. „Hann er náttúrulega bara gríðarstór dagur og telur alveg ofboðslega inn í ársveltuna hjá fyrirtækinu. Til dæmis fyrir þennan konudag að þá gerðum við tæpa 9000 blómvendi sem við sendum á markaðinn og erum að senda frá okkur yfir 100 þúsund blóm, bara fyrir þennan dag,“ segir Axel.Höfðar til breiðari markhóps Hann segir konudaginn miklu stærri dag en Valentínusardaginn sem var í síðustu viku. „Valentínusardagurinn hefur verið meira unga kynslóðin að koma inn á markaðinn með rómantísku hugsunina sína. Konudagurinn er miklu meiri blómadagur þar sem fjölbreytnin ræður ríkjum og dagurinn er í dag ennþá margfalt stærri. Hann höfðar til miklu stærri hóps Íslendinga. Axel hvetur karlmenn til þess að koma konum sínum á óvart í tilefni dagsins með fjölbreyttum blómvendi. „Ég held að konur vilji almennt mikla liti og fjölbreytni í vendina,“ segir Axel Sæland.
Mest lesið Ein glæsilegasta leikkona landsins á lausu Lífið Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón Lífið Gamlir samherjar funduðu á fiskistað Lífið Þaggar niður í orðrómi um sambandsslit Lífið Fjörutíu ára draumur Guðmundar rættist Lífið Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tónlist „Ég hef verið mikill kvíðasjúklingur alveg síðan ég var barn“ Lífið Bryndís Haralds amman og Gunni Helga afinn Lífið Terence Stamp látinn Bíó og sjónvarp „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Lífið Fleiri fréttir Þaggar niður í orðrómi um sambandsslit Fjörutíu ára draumur Guðmundar rættist Gamlir samherjar funduðu á fiskistað Ein glæsilegasta leikkona landsins á lausu Saga Matthildur orðin tveggja barna móðir WikiLeaks og aðför stórvelda: Uppljóstrun aldarinnar undirbúin í Reykjavík Bryndís Haralds amman og Gunni Helga afinn Annie Mist á von á þriðja barninu Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón „Ég hef verið mikill kvíðasjúklingur alveg síðan ég var barn“ Maðurinn sem Pink Floyd kveikti í er látinn Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Krakkatía vikunnar: Strumparnir, borgarstjórar og tónlist Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Fréttatía vikunnar: Þýskaland, hetja og kaffihús Forsetahjónin létu sig ekki vanta Uppskrift að hinu fullkomna vinkonukvöldi Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Þorsteinn og Rós orðin hjón Fagna aldarfjórðungsafmæli Ylstrandarinnar á morgun Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Bieber fékk sér smók í Skagafirði Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Cruise afþakkaði boð Trump Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Sjá meira