Innlent

Mörgum spurningum ósvarað: Austurrískur sérfræðingur á leiðinni til landsins

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Frá blaðamannafundi lögreglunnar í Rúgbrauðsgerðinni í dag.
Frá blaðamannafundi lögreglunnar í Rúgbrauðsgerðinni í dag. Vísir/Anton
Austurrískur réttarmeinalæknir mun fljúga til landsins á morgun til að kryfja lík Birnu Brjánsdóttur, sem fannst látin í dag. Hann mun koma til með að kveða upp um dánarorsök hennar við fyrsta tækifæri en enn liggur ekki fyrir hvernig og hvenær Birna lést.

Réttameinalæknirinn er búsettur hér á landi en var utan landsteinanna. Búist er við að niðurstaða rannsókna hans muni liggja fyrir innan nokkurra daga en krufning mun hefjast í dag.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í Fréttablaðinu á morgun þar sem fjallað verður ítarlega um rannsóknina á dauða Birnu en lík hennar fannst við Selvogsvita á sunnanverðum Reykjanesskaga eftir hádegi í dag.

Rannsókninni er hvergi nærri lokið enda mörgum spurningum enn ósvarað.

 

Til að mynda er enn á huldu hvort andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti. 

Lögreglan gerir þó sterklega ráð fyrir því, ekki síst í ljósi blóðs úr Birnu sem fannst í rauðu Kia Rio bifreiðinni sem skipverjarnir tveir sem í haldi eru vegna málsins höfðu á leigu. Þrátt fyrir að ekki sé hægt að segja með fullri vissu á þessari stundu hvenær Birna lést gengur lögreglan að sama skapi út frá því að hún hafi látist í bifreið mannanna.

Ekki verður þó úr því skorið fyrr en eftir krufningu á líkinu og ítarlegri rannsókn á áverkum Birnu.

Var henni ekið eða komið fyrir í sjónum?

Lögreglan rannsakar einnig hvernig lík Birnu rataði að Selvogsvita, hvort mennirnir tveir sem eru í haldi vegna málsins hafi ekið henni suður á Reykjanes eða hvort henni hafi skolað þangað með hafstraumum frá öðru svæði. 

Komið hefur fram að bíl þeirra var ekið 300 kílómetra á þeim sólarhring sem skipverjar voru með bílinn á leigu. Selvogsviti passar við þann kílómetrafjölda eins og Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni, fræddi lesendur Vísis um fyrr í dag.

Lögreglan útilokaði þó á blaðamannafundinum að henni hafi verið kastað af togaranum Polar Nanoq eftir að hann lagði úr höfn á laugardag fyrir rúmri viku. Líklegra er að henni hafi verið komið fyrir í sjónum með öðrum hætti og hefur Óseyrarbrú skammt frá Þorlákshöfn verið nefnd í því samhengi.

 

 

 

Hópur fólks kom saman til að minnast Birnu í Vatnsmýri í dag.Vísir/Anton
Lögreglan kannar nú hafstrauma í slagtogi við sérfræðinga á Veðurstofu Íslands til að fá fyllri mynd af því hvar henni gæti hafa verið komið fyrir.

Þá á ennþá eftir að fylla fullkomlega í eyðuna í ferðum bílsins að morgni laugardagsins 14. janúar en hann sést ekki á hafnarsvæði Hafnarfjarðarhafnar á milli klukkan 07:00 til 11:30.

Til þess að fá gleggri mynd af því hvað fór fram við Hafnarfjarðarhöfn óskaði lögreglan eftir að ná tali af ökumanni hvítrar bifreiðar. Henni hafði verið ekið vestur Óseyrarbraut í Hafnarfirði, laugardaginn 14. janúar kl. 12.24 og sést í öryggismyndavélum á hafnarsvæðinu.

Undir kvöld kom tilkynning þess efnis að lögreglan hefði náð tali af ökumanninum. Búið er að ræða við manninn og hans þætti í málinu lokið. Hann hafði ekki upplýsingar undir höndum sem komu að notum við rannsóknina á hvarfi Birnu. Þó þótti mikilvægt að hnýta enda á þann anga málsins að sögn Gríms.

Farsímagögn enn til rannsóknar

Enn er unnið úr farsímagögnum úr símum mannanna annars vegar og síma Birnu hins vegar. Sími Birnu er ófundinn. Það, eins og margir aðrir þættir málsins, er vandasamt verk en í gær kom í ljós að ekki lengur er hægt að fullyrða að slökkt hafi verið handvirkt á síma Birnu klukkan 5:50 að morgni laugardags eins og áður var haldið fram. 

Tveir skipverjar eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins en þeir hafa hafa verið einangrun á Litla-Hrauni síðan á föstudag. Talið er að þeir verði fluttir á lögreglustöðina við Hverfisgötu til frekari yfirheyrslna á morgun. 

Annar mannanna er sömuleiðis bendlaður við smygl á tuttugu kílóum af hassi sem fundust um borð í togaranum. Fíkniefnamálið er ekki talið tengjast máli Birnu að öðru leyti en því að sami maður liggur undir grun.

Nánar verður fjallað um rannsóknina á máli Birnu í Fréttablaðinu á morgun sem fyrr segir. Helstu tíðindi dagsins af málinu má nálgast hér að neðan.

Uppfært klukkan 11:18 mánudaginn 23. janúar

Í fyrri útgáfu mátti skilja að austurríski sérfræðingurinn væri búsettur erlendis en hið rétta er að hann er búsettur og starfar hér á landi.




Tengdar fréttir

Norrænir miðlar greina frá líkfundinum

Erlendir miðlar eru þegar farnir að greina frá nýjustu vendingum í máli Birnu Brjánsdóttur, sem talið er með nokkurri vissu að hafi fundist látin við Selvogsvita í dag.

Hvíti bíllinn fundinn

Ökumaður hvíta bílsins, sem lögreglan lýsti eftir í fyrradag, er kominn í leitirnar.

Lífsýni úr bílnum er úr Birnu

Lífsýni úr rauða Kia Rio-bílnum voru send utan til rannsóknar og liggur nú fyrir niðurstaða þeirrar rannsóknar þess efnis að lífsýnið er úr Birnu Brjánsdóttur

Styrkir tengingu mannanna við Birnu

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni á hvarfi Birnu Brjánsdóttur, á ekki von á því að mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að málinu verði yfirheyrðir í dag.

Óku rauða bílnum um 300 kílómetra á einum sólarhring

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni á máli Birnu Brjánsdóttur sem talið er að hafi fundist látin í dag, segir að rauða Kio Rio-bílnum hafi verið ekið samtals um 300 kílómetra á þeim sólarhring sem skipverji af grænlenska togaranum Polar Nanoq var með bílinn á leigu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×