Dauðir mánuðir í kvikmyndahúsum Stefán Þór Hjartarson skrifar 5. janúar 2017 10:00 Kevin James hefur átt góða janúarmánuði, sérstaklega í hlutverki Pauls Blart.
Janúar og febrúar eru oft kallaðir „dump months“ eða ruslmánuðirnir í kvikmyndabransanum því að myndir sem koma út í þessum mánuðum eiga oftast litla möguleika á því að fá mikla aðsókn. Hollywood-stúdíóin „henda ruslinu“ í þessa mánuði – þeim myndum sem þau búast ekki við að skili miklum peningum er oft „dömpað“ hingað. Þetta stafar einfaldlega af því að mánuðurinn á undan er að sjálfsögðu desember, en það er einn vinsælasti kvikmyndamánuður ársins. En það eru þó fleiri ástæður fyrir þessu. Til að mynda er fólk yfirleitt með minna fé milli handanna eftir sturlaða eyðslu jólanna, veðrið er oft á tíðum verra og allar Óskarsbeiturnar verða að koma út seinnipart árs svo að gamla fólkið sem sér um að tilnefna þær til verðlaunanna muni nú eftir þeim.Shadow of a Doubt er ein besta kvikmynd allra tíma og viti menn, hún kom í kvikmyndahús í janúar.Þessu hefur þó ekki alltaf verið háttað svona. Í bernsku kvikmyndanna voru til að mynda margar góðar myndir gefnar út í janúar – nokkrar klassískar Charlie Chaplin myndir eins og The Kid og The Circus komu út í þessum óvinsæla mánuði og síðar meir, á fimmta áratugnum komu út myndir eins og The Grapes of Wrath, Sullivan’s Travels, Shadow of a Doubt og The Treasure of the Sierra Madre en allar eru þær óneitanlega nokkrar af bestu myndum allra tíma. Oftast eru það þó arfaslakar myndir sem koma út á þessum tíma. Stúdíóin hafa verið dugleg við að henda slöppum bitlausum gamanmyndum á þessa mánuði. Hver man til dæmis ekki eftir hinni sprenghlægilegu mynd Hotel for Dogs með Don Cheadle? Enginn? Það er líka vinsælt að færa spennumyndir þangað – The Green Hornet stefndi í að fá dræmar viðtökur svo hún var færð frá júní til janúar. Endurgerðum af frægum myndum er oft „dömpað“ á þessum tíma, Disney hefur til dæmis nýtt sér það til að gefa út endurgerðir af Lion King og Beauty and the Beast, og Star Wars-myndirnar hafa líka verið endurútgefnar í febrúar. Svo eru það unglingamyndirnar og rómantísku gamanmyndirnar – þær eru oft settar í sýningar í janúar og febrúar, því að unglingar skella sér mikið í bíó á þessum tíma og í febrúar er Valentínusardagurinn. Hin ótrúlega skelfilega Fifty Shades of Frey kom til að mynda út á þessum tíma. Þannig að það gæti orðið svolítil bið í að næsta bomba komi í kvikmyndahúsin, en þangað til er til dæmis hægt að rifja upp hina bráðskemmtilegu kvikmynd Pauls Blart: Mall Cop með Kevin James, en það stórvirki kvikmyndasögunnar kom einmitt upphaflega inn í líf okkar í janúar.
Mest lesið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Lífið Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Lífið Fleiri fréttir Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Sjá meira