Guðjón Valur markahæstur í sigri á Lemgo | Naumur sigur Veszprem Kristinn Páll Teitsson skrifar 25. mars 2017 19:31 Guðjón Valur fagnar marki með Löwen. Vísir/Getty
Guðjón Valur Sigurðsson, Alexander Petersson og félagar í Rhein-Neckar Löwen unnu öruggan 33-28 sigur á Lemgo í eina leik dagsins í þýska handboltanum en með sigrinum kemst Löwen upp fyrir Kiel í annað sæti þýsku deildarinnar. Löwen átti tvo leiki til góða á toppliðin tvö, Flensburg og Kiel og gat með sigri í dag komist upp fyrir lærisveina Alfreðs Gíslasonar og um leið saxað á forskot Flensburg. Það var ekki annað að sjá en að gestirnir væru klárir þegar leikurinn hófst en Löwen náði um miðbik fyrri hálfleiks fimm marka forskoti og leiddi með fjórum mörkum í hálfleik 17-13. Lemgo náði aldrei að gera alvöru atlögu að forskotinu í seinni hálfleik en með Guðjón Val á flugi náði Löwen að innbyrða fimm marka sigur. Fyrr í dag léku Aron Pálmarsson og félagar í Veszprem fyrri leik liðsins gegn PPD Zagreb í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en Veszprem tekur eins marka forskot í heimaleikinn sem fer fram í Ungverjalandi á laugardaginn næsta. Gestirnir náðu snemma þriggja marka forskoti og leiddu 12-10 í hálfleik en áttu í erfiðleikum með að hrista Króatana frá sér. Fór svo að PPD Zagreb jafnaði metin í upphafi seinni hálfleiks en ungverska liðið svaraði með fjórum mörkum í röð og breytti stöðunni í 18-14 var staðan því vænleg fyrir Ungverjana. Zagreb náði að laga stöðuna töluvert á lokasprettinum og minnka muninn niður í eitt mark fyrir lok leiksins en það verður erfitt fyrir króatíska liðið að sækja eitthvað á heimavelli silfurliðsins frá því í fyrra. Aron komst á blað með eitt mark en Gasper Marguc og Renato Sulic voru markahæstir í liði Veszprem með fjögur mörk hvor.
Handbolti Mest lesið Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Íslenski boltinn Tók sinn tíma að jafna sig Körfubolti Í beinni: Valur - Fram | Auka sprækir Framarar pressuna á Val? Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Fleiri fréttir Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Sjá meira