Birna Berg markahæst þegar Glassverket fór upp í annað sætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2017 20:34 Birna Berg Haraldsdóttir. Vísir/Getty
Birna Berg Haraldsdóttir var atkvæðamikil í kvöld þegar Glassverket vann eins marks sigur á Vipers Kristiansand í baráttu tveggja Íslendingaliða um annað sætið í norsku úrvalsdeildinni í handbolta. Glassverket vann leikinn 23-22 á heimavelli sínum eftir að hafa verið 11-10 yfir í hálfleik. Með sigrinum tók Glassverket annað sætið af Våg-liðinu. Íslensku landsliðskonurnar Birna Berg Haraldsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir mættust þarna en þær spila saman á hægri vængnum í landsliðinu. Bæði liðin voru búin að vinna tvo leiki í röð en Glassverket var einu stigi á eftir. Glassverket er nú einu stigi á eftir toppliði Larvik sem á reyndar leik inni. Larvik er með 16 stig, Glassverket með 15 stig og Våg-liðið er síðan með 14 stig. Birna Berg Haraldsdóttir skoraði sjö mörk í kvöld og var langmarkahæst í liði Glassverket. Þórey Rósa Stefánsdóttir, sem spilar með Våg, nýtti eina skotið sitt í leiknum. Birna Berg ætlaði sér stóra hluti í kvöld en hún var búin að taka fimm skot eftir aðeins tíu mínútna leik. Hún þurfti 18 skot til að skora mörkin sín sjö. Fjögur marka hennar komu af vítalínunni en hin með þrumuskotum. Vipers byrjaði þó betur og komst í 6-3 í upphafi leiks en tvö mörk Birnu Berg hjálpuðu Glassverket að snúa við blaðinu og komast í 11-8 eftir 26 mínútur. Birna Berg var komin með fjögur mörk í hálfleik og bætti síðan við þremur mörkum í seinni hálfleiknum. Mark Þóreyju Rósu kom eftir tæpar 19 mínútur í seinni hálfleik þegar hún minnkaði muninn í 19-17.
Handbolti Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Fleiri fréttir „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Sjá meira