Íslenskt hagkerfi er tæknilega séð í lægð Hersir Aron Ólafsson skrifar 12. september 2017 19:30
Íslenska hagkerfið er tæknilega séð í lægð í fyrsta sinn frá árinu 2012. Þetta má lesa úr gögnum Hagstofu Íslands um landsframleiðslu. Hagfræðiprófessor segir að vissulega hafi dregið talsvert úr vexti hérlendis, en litlar líkur séu þó á stórri niðursveiflu í bráð. Í frétt Sky News sem birt var í dag segir Bjarni Benediktsson forsætisráðherra það óhjákvæmilegt að önnur bankakreppa muni skella á fyrr eða síðar, þó ekki sé ljóst hvenær það verði. Aftur á móti þurfi stjórnvöld að vera undir það búin og gæta þess að þeir sem tekið hafi áhætturnar beri afleiðingarnar, en ekki almennir skattborgarar.Sjá einnig: Bjarni segir að græðgin muni leiða til annarrar kreppu Í frétt Financial Times frá síðustu helgi er því lýst hvernig árstíðaleiðrétt landsframleiðsla á Íslandi hefur dregist saman á síðustu tveimur ársfjórðungum, en á fræðimáli er talað um efnahagslægð þegar svo stendur á. Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík telur þó ekki um hættumerki að ræða. Þvert á móti hafi verið tímabært að hér hægði á vextinum, enda geti ríki að jafnaði ekki borið svo mikinn hagvöxt sem hér hefur verið undanfarið til lengdar. Friðrik segir þróunina því í raun vera af því góða, svo lengi sem ekki komi til eiginlegs samdráttar. Hann segir hins vegar að fátt í umhverfinu hérlendis bendi til þess að til samdráttar komi á næstunni. Aftur á móti sé það ávallt talsvert háð utanaðkomandi þáttum. Þannig sé kínverskt bankakerfi t.a.m. orðið mjög útþanið og séu helstu hættumerkin því á lofti á þeim slóðum. Efnahagskreppa í Kína myndi síðan eðli málsins samkvæmt hafa alþjóðlegar afleiðingar sem óhjákvæmilega næðu til Íslands.
Mest lesið Íslendingur handtekinn á EM Innlent Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hljóp á sig Innlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Fleiri fréttir Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Sjá meira