Skólahald í sóknarheimili Þorgeir Helgason skrifar 19. nóvember 2016 07:00 Börnin munu sækja skólahald í safnarheimili Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði. vísir/vilhelm „
Það er löngu orðið tímabært að létta á fjölda nemenda í Hraunvallaskóla en hann er orðinn einn fjölmennasti skóli landsins,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðarbæjar. Ráðist hefur verið í uppbyggingu á nýjum skóla í Vallahverfinu í Hafnarfirði. Skólinn verður í Skarðshlíð en þar rís nýjasta byggð Hafnarfjarðarbæjar. „Meðan skólahúsnæðið er ekki tilbúið er ljóst að notast þarf við bráðabirgðahúsnæði og úr varð að bærinn mun leigja safnaðarheimili Ástjarnarkirkju. Fyrsta ár skólahaldsins mun fara þar fram en flytjast svo í nýtt skólahús haustið 2018,“ segir Rósa.Rósa Guðbjartsdóttir, formaður fræðsluráðs í Hafnarfirði. Fréttablaðið/StefánSafnaðarheimilið verður leigt af Hafnarfjarðarbæ á skólatíma en mun sinna sókn Ástjarnarkirkju um kvöld og um helgar. „Fyrsta árið verður skólahald fyrir fyrsta til fjórða bekk í safnaðarheimilinu en áætlað er að skólinn muni sinna fyrsta til tíunda bekk á næstu árum. Undirbúningur er í fullum gangi og við munum bráðlega auglýsa eftir skólastjóra,“ segir Rósa. Hraunvallaskóli er tiltölulega ungur skóli en hann tók til starfa árið 2005 og rúmlega 900 nemendur sækja hann. Skólinn er svokallaður opinn skóli sem felur í sér að ekki er mikil áhersla lögð á formlegt kennslufyrirkomulag. Nemendur hafa meira frelsi til að haga náminu eftir sínu höfði og ekki er notast við hefðbundnar kennslustofur. „Kennslufyrirkomulagið í Hraunvallaskóla hentar ekki öllum nemendum og geta því þeir nemendur sem vilja formlegra kennslufyrirkomulag sótt nám í skólanum í Skarðshlíð. Ákveðið hefur einnig verið að leggja mikla áherslu á tónlistarkennslu í skólanum,“ segir Rósa. Lars Jóhann Imsland Hilmarsson, skólastjóri Hraunvallaskóla, segist ánægður með að nýi skólinn hefji störf næsta haust. „Það er mikil þörf á því að létta á nemendafjölda Hraunvallaskóla.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Vance þreifar fyrir sér í Sviss Erlent Fleiri fréttir Lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Sjá meira