Yfir fimmtíu manns leitað til Stígamóta í vikunni Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 19. nóvember 2016 12:00 Yfir sextíu milljónir söfnuðust í átakinu og um fimm hundruð mánaðarlega styrktaraðilar urðu til. Vísir/Daníel
Fimmtíu manns hafa leitað til Stígamóta síðustu vikuna til að leita sér aðstoðar. Talskona Stígamóta segir söfnunarátak þeirra hafa vakið mikla athygli og fleiri því leitað til samtakanna. Yfir sextíu milljónir söfnuðust í átakinu og um fimm hundruð mánaðarlega styrktaraðilar urðu til. Stígamót eru grasrótarsamtök sem berjast gegn kynferðisofbeldi og veita fólki aðstoð sem hefur verið beitt kynferðisofbeldi. Undanfarið hafa þau staðið fyrir söfnunarátaki. Markmiðið er að safna mánaðarlegum styrktaraðilum að rekstri Stígamóta. Hápunktur átaksins var í gærkvöldi þegar sérstakur söfnunarþáttur var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2. Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta er ánægð með hversu margir voru tilbúnir að styðja við samtökin. Söfnunin fór þó hægt af stað. „Svo spítti fólk í lófanna og þegar útsendingu lauk þá var enn að bætast við stuðningsfólk. Seinast þegar að ég vissi þá voru komnir um 550 nýir stuðningsaðilar sem ætla að tryggja okkur reksturinn næstu mánuði og ár,“ segir Guðrún. Þá segir hún að yfir sextíu milljónir hafi safnast. „Við erum ákaflega ánægð með þennan árangur og hlökkum til að bretta upp ermar og nýta þennan stuðning til þess að bæta þjónustuna okkar,“ segir Guðrún. Guðrún segir átak sem þetta skila miklum árangri þegar kemur að því að vekja athygli á starfi samtakanna. „Það varð ansi mikil vitundarvakning og sprenging eiginlega í hérna aðsókn hjá okkur þannig að það komu inn nýir aðilar á þessari viku sem óskuðu eftir að vinna með sjálfan sig á Stígamótum og það er nú ekki síður mikilvægt,“ segir Guðrún Jónsdóttir
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Sjá meira