Þurfa að greiða rúma milljón fyrir „malbik Hitlers“ Jóhann Óli Eiðsson skrifar 29. júlí 2016 18:40 Myndin sýnir götur í Düsseldorf á fjórða áratug síðustu aldar. vísir/getty
Íbúar við götuna Auf'm Rott, í úthverfi Düsseldorf, þurfa að greiða að meðaltali 10.000 evrur, rúmlega 1,3 milljón krónur, í gatnagerðargjald fyrir götu sem virtist fullkláruð. Sagt er frá þessu af Die Welt. Framkvæmdir við götuna hófust árið 1937 en síðan þá hafa ljósastaurar og holræsi verið endurnýjuð. Að auki hefur gangstéttum verið bætt. Allan þennan tíma, sem spannar tæp áttatíu ár, hefur gatan aldrei hlotið skráninguna „fullkláruð“ í bókhaldi borgarinnar. Því kemur rukkunin fyrir framkvæmdir síðustu áttatíu ára fram nú. Íbúar mótmæltu gjaldinu og höfðuðu dómsmál til að fá því hnekkt. Nú hefur undirréttur staðfest að þeim beri að greiða gjaldið. „Framkvæmdir eru ekki háðar tímatakmörkunum,“ segir meðal annars í dómnum og því stenst gjaldtakan. Í þýskum miðlum hefur málið verið kallað „malbik Hitlers“. Á tímum þriðja ríkisins þurftu íbúar ekki að greiða sambærilegt gjald. Upphæðin var fengin með því að líta aftur til eldri gjaldmiðils, þýska marksins, og gera ráð fyrir verðbólgu á tímabilinu. Í samtali við Spiegel segja íbúar að þeir muni sætta sig við niðurstöðu dómara og ekki áfrýja málinu til æðra dómstigs.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Sjá meira