Leita að fallegum heimilum á Íslandi fyrir nýjan sjónvarpsþátt Stefán Árni Pálsson skrifar 3. ágúst 2016 11:30 Helgi, Gulla Jónsdóttir og Þóra Margrét Baldvinsdóttir.
Stöð 2 leitar að fallegum heimilum á Íslandi fyrir glænýjan sjónvarpsþátt sem fer í loftið á næsta ári. Sérfræðingarnir Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir, hönnunarráðgjafi og eiginkona Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, skoða falleg heimili, gefa góð ráð, sýna góðar hugmyndir og fylgjast jafnvel með fyrirhuguðum breytingum ef einhverjar eru. Í hverjum þætti verða sýnd þrjú heimili sem sérfræðingarnir skoða í krók og kima. Við kynnumst stuttlega heimilisfólkinu sem segir okkur frá hugmyndunum á bakvið hönnun heimilisins. Leitast verður við að skoða alls konar heimili, jafnt litlar íbúðir sem stór einbýlishús, í höfuðborginni sem úti á landi, jafnt gömul sem ný. Í lokaþættinum mun Sindri Sindrason, einn helsti fagmaður okkar um falleg heimili, spjalla við sérfræðinga þáttanna og fleiri góða gesti og rifja upp það helsta. Á sama tíma mun verða netkosning á visir.is þar sem íslendingar geta valið sér sitt uppáhalds heimili. Markmiðið er að ná fram því sem fallegt er og gleður augað. Það er gert með vandaðri myndatöku, hljóði og eftirvinnslu. Umfjöllunin gengur út á að finna út hvað það er sem gerir fasteign að fallegu heimili. Sitt sýnist hverjum en svo mikið er víst að það er alltaf fróðlegt að fá umfjöllun um mismunandi arkitektúr, hverfi og hugmyndir manna um híbýli. Síðast en ekki síst er einfaldlega gaman að sjá hvernig aðrir hafa hreiðrað um sig.Hér er hægt að skrá sitt heimili til leiks.
Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira