Vignir allt í öllu í lokin í endurkomusigri Tvis Holstebro á móti toppliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2016 20:09 Vignir Svavarsson var markahæstur. Vísir/Getty
Vignir Svavarsson átti mjög flottan leik þegar Tvis Holstebro vann eins marks útisigur á toppliði dönsku úrvalsdeildarinnar AaB Håndbold. Þessi Íslendingaslagur var bæði æsispennandi og dramatískur en Tvis Holstebro snéri leiknum við á lokamínútunum og vann 26-25. Vignir Svavarsson var markahæstur í liði Tvis Holstebro með sex mörk. Hann skoraði þrjú mörk á lokakaflanum þegar Tvis Holstebro vann upp þriggja marka forskot heimamanna. AaB Håndbold var 24-21 yfir en skoraði þá ekki í tæpar fimm mínútur og á meðan tókst Vigni og félögum að jafna metin. Aron Kristjánsson, þjálfari AaB, tók leikhlé í stöðunni 25-25 þegar mínúta var eftir en norski landsliðsmaðurinn Sander Sagosen lét verja hjá sér. Tvis Holstebro fékk síðustu sóknina og eftir leikhlé tuttugu sekúndum fyrir leikslok þá skoraði Martin Lysdahl Hansen sigurmarkið fimm sekúndum fyrir leikslok. AaB Håndbold var á toppnum fyrir leikinn en hefði náð tveggja stiga forskoti með sigri. Þessi sigur Tvis Holstebro þýðir að liðið er nú í fjórða sæti og aðeins fjórum stigum frá toppnum. Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði tvö mörk fyrir lið AaB Håndbold en Arnór Atlason lék ekki vegna meiðsla.
Handbolti Mest lesið Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Fótbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Sjö stórmeistarar berjast um sigurinn Sport Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Fótbolti Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira