Lítið framboð af búningum kvenhetjunnar Una Sighvatsdóttir skrifar 3. febrúar 2016 20:00 Rey er aðalhetja nýjustu Stjörnustríðsmyndarinnar en fátítt hefur verið að konur beri uppi ævintýramyndir sem hetjur.
Nýju Stjörnustríðsmyndinni var fagnað af femínistum fyrir að kynna loks konu til leiks sem aðalhetjuna. Þessi feminíska vakning virðist hinsvegar ekki hafa skilað sér alla leið til leikfangaframleiðenda vestra því kvenhetjan Rey er sjaldséð í hillum verslunum eins og rætt hefur verið í þaula á Twitter undir merkinu #whereisrey. Nú er komið í ljós að það sama á við um öskudagsbúninga. Ungir Star Wars aðdáendur eiga valmöguleika í Hagkaupum um að klæða sig upp á öskudaginn eins og vondi karlinn, Kylo Ren eða eins og orrustuflugmaðurinn Finn. En aðalpersónu myndarinar, kvenhetjuna Rey, er hinsvegar hvergi að finna í hillunum.Í Hagkaup fá öskudagsbúningar tengdir helstu karlhetjunum en enginn tengdur aðalpersónunni, kvenhetjunni Rey. Búningarnir voru pantaðir hálfu ári fyrir frumsýningu myndarinnar.Vissu ekki að hún yrði aðal Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, segir að skýringin sé sú að búningarnir séu pantaðir með margra mánaða fyrirvara og persónunni Rey hafi ekki verið haldið á lofti þegar birgjar kynntu vöruúrvalið, áður en myndin var frumsýnd. „Rey er náttúrulega aðalhetjan þegar hún kom á svæðið, en þegar við kaupum búningana í maí, þá vorum við ekki búin að fá það upp á borðið að hún kæmi til með að vera aðalhetjan. Þannig að við pöntuðum þetta svolítið blint, eins og kannski framleiðendur gerðu líka, þeir renna blint í sjóinn í fyrstu atrennu," segir Gunnar Ingi. Hann á von á því að framleiðendur muni fylgja vinsældum Rey eftir. „Miðað við hvernig kvenhetjan var í fyrstu myndinni þá kemurhún örugglega til með að vera framar í röðinni á næsta „seasoni". Ég held að menn séu bara að þreifa sig áfram og það er í þessu eins og öðru að það sem er vinsælt, það er framleitt meira af því."Gunnar Ingi Sigurðsson segir að Rey-búningar hafi ekki verið í boði þegar Hagkaup lagði inn sína pöntun í maí 2015. Framleiðendur hafi ekki komið því á framfæri að hún væri stór karakter í myndinni og líkleg til vinsælda.Töldu sig vita að strákar vildu ekki kvenpersónur Í lok janúar ljóstraði nafnlaus heimildamaður úr herbúðum bandaríska leikfangaframleiðandans Hasbro því upp að það hafi verið meðvituð ákvörðun stjórnenda að framleiða lítið sem ekkert af Rey leikföngum, því markaðsmenn voru vissir í sinni sannfæringu um að Stjörnustríð væri fyrir stráka og strákar vildu ekki sjá kvenhetjur. Sveinn Ólafur Lárusson, leikfangaséni hjá Nexus, segir það hafi alveg sést á sýnishornum úr myndinni að Rey yrði stór karakter. Markaðurinn hafi hinsvegar veðjað á að Kylo Ren yrði vinsælasti karakterinn, en annað hafi komið á daginn.Mátu markaðinn rangt „Í allri markaðssetningu var Kylo Ren settur fram sem nýja andlitið, það var keyrt áfram, en síðan bara kemur myndin út og þá er Rey á allra vörum. Og bara allir, krakkar, konur karlar, allir elska hana og strákar líka. Og hún er bara næstum því ófáanleg í dag," segir Sveinn. Það litla sem fékkst af Rey leikföngum seldist því nánast samstundis upp. Eftirspurn eftir kvenhetjunni er því greinilega mun meira en framboðið. Sveinn segir það hafa runnið upp fyrir framleiðendum vestra að þeir mátu markaðinn rangt. Þar megi ekki síst þakka því félagslega aðhaldi sem netsamfélagið veitir, svo sem á Twitter. Þegar næsta lína leikfanga fór í framleiðslu eftir frumsýningu myndarinnar var því snarlega bætt úr því og Sveinn segir að með næstu sendingu sé von á Rey í alls konar stærðum og útgáfum. „Það á að fara að detta inn bara núna eftir viku eða tvær vikur. Þá er ég að fá fullt af Rey."Sveinn Ólafur Lárusson, leikfangaséni hjá Nexus, segir að það virðist hafa komið markaðsöflunum á óvart hversu vinsæl Rey varð. Það sé hinsvegar augljóst að hún sé aðalhetja myndarinnar.Kvenhetjur smám saman að fá meira vægi Rey er ekki fyrsta kvenhetjan sem leikfangaframleiðendur hundsa því dæmin eru fleiri, s.s. úr Avengers kvikmyndaflokknum þar sem Svarta ekkjan er sjaldnast höfð með í leikfangasettum. Sveinn segir svolítið sannleikskorn í því mati markaðsmanna að kvenhetjur séu minna eftirsóttar, en það sé þó að breytast. „Það er alltaf einhver á einhverjum fundi sem setur fram þessa þröngsýnu hugsun að það séu bara strákar að fara að sjá þessar myndir og þetta séu bara merki fyrir stráka. En þetta er algjörlega að breytast núna. Við erum að sjá meira af kvenpersónum, hvort sem það eru ofurhetjumyndir eða Stjörnsustríð. Þetta gerist mjög hægt, en við finnum það alveg að við erum að fá meira af kvenofurhetjum í leikföngunum og núna fá þær að vera alveg með strákunum, miklu meira en áður."
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Sjá meira