Jakob stigahæstur í naumu tapi Kristinn Páll Teitsson skrifar 3. janúar 2016 17:30 Jakob Örn átti flottan leik í dag en gat ekki komið í veg fyrir tap Boras. Vísir/getty
Jakob Örn Sigurðarson fór fyrir liði Borås með 21 stig en þurfti að sætta sig við fimm stiga tap gegn Nassjö í sænsku deildinni í körfubolta í dag en þetta var annað tap liðsins í röð. Jakob Örn og félagar höfðu unnið fjóra leiki í röð í deildinni áður en kom að tapinu gegn Nörrkoping Dolphins í síðustu umferð en Borås mistókst að saxa á forskot Södertälje í dag sem á tvo leiki til góða. Borås hafði undirtökin á heimavelli lengst af í leiknum í dag og leiddi 63-54 að þremur leikhlutum loknum en náðu sér aldrei á strik í fjórða leikhluta og náðu gestirnir í Nassjö að stela sigrinum á lokametrunum. Hlynur Bæringsson og félagar í Sundsvall Dragons komust upp í 4. sæti deildarinnar með 95-86 sigri á útivelli gegn Jamtland í dag en þetta var annar sigur Sundsvall í röð. Sundsvall náði átján stiga forskoti strax í fyrsta leikhluta og leiddi með nítján stigum fyrir fjórða leikhluta en leikmönnum Jamtland tókst að klóra í bakkann á lokamínútum leiksins. Hlynur skilaði níu stigum ásamt því að taka þrjú fráköst, gefa eina stoðsendingu og stela boltanum þrisvar en flest stig hans komu af vítalínunni í dag.
Körfubolti Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Fótbolti Fleiri fréttir Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Sjá meira