Stafakarlarnir hafa ekkert elst síðustu 20 árin Stefán Þór Hjartarson skrifar 15. desember 2016 11:00 Bergljót tók nýlega við gullplötu fyrir Stafakarlaplötuna en hún fylgir með afmælisútgáfunni ásamt textum. Mynd/Jón Önfjörð
Bókin Stafakarlarnir eftir Bergljótu Arnalds er orðin 20 ára og kemur af því tilefni út í afmælisútgáfu nú fyrir jól. Bergljótu datt ekki einu sinni í hug að úr yrði metsölubók þegar hún skrifaði hana á leikvelli í Vesturbænum. Bókin hefur selst upp margoft síðan þá. „Það er náttúrulega draumur hvers höfundar að bækurnar þeirra verði klassískar og það er mjög gaman að þetta efni lifir áfram í menningarflórunni. Þeir greinilega eldast ekkert þessir karlar og ég vil meina að ég geri það ekki heldur,“ segir Bergljót Arnalds hlæjandi aðspurð hvernig það sé að karlarnir hennar séu orðnir 20 ára.Datt þér einhvern tímann í hug að þetta yrði svona langlíf saga? „Mér datt ekki einu sinni í hug að þetta yrði metsölubók. Það var frænka mín sem sagði mér frá því fyrst að bókin væri á metsölulistum. Ég hélt að metsölulistar væru bara fyrir skáldsögur en að myndskreytt barnabók kæmist þangað inn var eitthvað sem ég hafði ekki einu sinni hugsað út í. Eina takmarkið mitt var að skrifa söguna og gera hana skemmtilega. Ég skrifaði hana fyrir strákinn minn – ætli ég hafi ekki verið tvítug þegar ég gerði það. Hún varð til á leikvelli í Vesturbænum þar sem ég var með stráknum mínum að leik. Ég hugsaði að það yrði gaman að skrifa stafabók þar sem allt myndi bara renna saman í eina heild en ekki þannig að hver stafur væri stakur fyrir sig. Þá fór ég að pæla í hverjar væru mínar uppáhaldsbarnabækur og þar á meðal var bókin Hljómsveitin fljúgandi. Þar kom fljúgandi hljómsveit og það átti að geta upp á hljóðfærunum. Ég hugsaði að það væri gaman að stafirnir kæmu kannski fljúgandi og þá datt mér í hug að stafirnir gætu talað og væru svolítið fyndnir.“Hefurðu ekki verið að endurútgefa Stafakarlana villt og galið öll þessi tuttugu ár? „Hún hefur verið endurútgefin nánast sleitulaust síðan hún kom fyrst út. Hún seldist strax svo hratt að ég náði ekki einu sinni að fá höfundareintökin mín. Ég fékk einhver tvö, þrjú eintök sem ég gaf mömmu og pabba en þegar ég ætlaði að ná í mín eintök var búið að selja þau öll af lagernum, þannig að ég á ekki fyrstu útgáfuna, en hún er örugglega orðin mjög verðmæt í dag. Síðan kom hún aftur út árið eftir og seldist þá upp fyrir jól. Síðan þá hefur hún komið út mjög reglulega. Hún var búin að vera uppseld núna og mikið verið suðað í mér að gefa hana aftur út.“Og núna er hún komin út í veglegri afmælisútgáfu. „Hún hefur aldrei verið svona stór. Þetta er bæði bók og diskur – ég samdi á sínum tíma tónlist, sem er eini barnadiskurinn sem ég hef gert. Það var rosa fjör, hver stafakarl fékk sitt lag. Ég var treg í taumi fyrst og ætlaði að gera eitthvað annað en síðan varð það alveg þvílíkt ball að láta þá fara að syngja og tjá sig líka á þann máta,“ segir Bergljót hlæjandi. „Það eru 35 lög á disknum, sem er meira en tvöfalt albúm, og það er farið frá óperuaríu yfir í salsa og allt þar á milli. Þetta var einu sinni gefið út svona saman, diskurinn og bókin, en núna eru allir söngtextarnir gefnir út með, prentaðir inn í bókina. Þannig að það er alveg gífurlegt magn orða fyrir hvern staf. Þegar lögin bætast við þá koma inn fleiri orð en það er auðvitað mismikið fyrir hvern staf – Ð-ið er ekki með neitt enn þá, við þurfum að fara að bæta úr því og búa til íslenskt orð sem hefst á Ð. Hans lag er svona Sigurrósarlag því að hann er dálítið leiður og þessi útsetning passaði eitthvað svo vel við tilfinningar hans. Hver stafur er með mikla þráhyggju fyrir sjálfum sér, svona eins og við erum öll á einhvern hátt. Allir í sínum heimi með hugann við eitthvað, líkt og jörðin snýst um sólina og tunglið um okkur. Ætli það sé ekki þess vegna líka sem okkur finnst þeir svo fyndnir,“ segir Bergljót að lokum. Afmælisútgáfa Stafakarlanna er komin í verslanir.
Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Halldór Haraldsson er látinn Tónlist „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Fleiri fréttir „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Sjá meira