Launahækkanir lækna skili sér ekki í betri þjónustu: Ræða úttekt McKinsey Nadine Guðrún Yaghi skrifar 20. september 2016 21:00
Viðskiptaráð Íslands segir að ný úttekt McKinsey & Company á Landspítalanum sýni að þrátt fyrir að laun lækna hafi hækkað hafi gæði þjónustunnar á spítalanum ekki aukist. Forstjóri Landspítalans er ekki sammála þessari túlkun ráðsins en framkvæmdastjórn spítalans fundaði um úttektina í gær. Viðskiptaráð segir úttektina sýna að aukin fjárframlög til Landspítalans síðustu ár hafi ekki skilað aukinni og betri þjónustu. „Við erum að benda á að í þessari skýrlsu kemur fram að aukin fjárframlög á síðustu árum hafi fyrst og fremst farið í það að hækka laun starfsfólks spítalans umfram laun á almennum vinnumarkaði. Það hafi ekki skilað sér í meiri gæðum eða aukinni þjónustu,“ segir Björn Brynjúlfur Björsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Laun starfsfólks Landspítalans hafi hækkað um 31 prósent á síðutu þremur árum að meðaltali en um 20 prósent á almennum vinnumarkaði. Þrátt fyrir þetta hafi biðlistar eftir skurðaðgerðum lengst en árið 2015 biðu 4600 manns eftir skurðaðgerð samanborið við 2600 manns árið 2012, sem er um 80 prósent aukning. „Okkur finnst umræðan vera yfirborðskennd. Stjórnmálaflokkarnir keppast við að lofa meiri fjármunum í heilbrigðiskerfið án þess að tilgreina nánar í hvað þeir fjármunir eigi að fara. Ef að fjármunirnir fara í frekari umfram launahækkanir þá teljum við að það muni ekki skila sér í betri þjónustu,“ segir Björn og bætir við að stjórnmálaöfl sem lofi auknum fjárútlátum til heilbrigðiskerfisins verði að tilgreina nánar með hvaða hætti þeim skuli varið Forstjóri Landspítalans er ekki sammála því að hækkun launa hjá heilbrigðisstarfsfólki auki ekki gæði þjónustunnar. „Ég er ekki sammála því hvernig þeir túlka þessa hluti. Gæði okkar voru mjög góð og við misstum þau ekki niður í hruninu og þau hafa haldist góð. Vissulega hefur helmingurinn af því fé sem hefur komið inn síðustu árin farið í laun en mönnun er hinsvegar okkar stóra vandamál til framtíðar. Það er mjög mikilvægt að tryggja það að laun og annað í starfsumhverfi sé viðunandi,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. Páll segir að það sé ekkert í úttektinni sem bendi til annars en að það fé sem hafi farið til Landspítalans hafi verið mjög vel nýtt. „Hins vegar ef það á virkilega að fara gefa inn þá verður að skilgreina það mjög vel í hvað peningarnir fari svo þeir séu nýttir til að bæta heilbrigðisþjónustuna,“ segir Páll.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Sjá meira