Rúta fór næstum á hliðina þegar vegkantur gaf sig Samúel Karl Ólason skrifar 31. október 2016 17:43 Frá vettvangi. Mynd/Herbert Hauksson.
Bændur, björgunarsveitir og lögregla komu 43 farþegum rútu til aðstoðar í dag. Vegkantur hafði gefið sig undan rútunni við Gígjarhólskot í Bláskógarbyggð upp úr klukkan 16 í dag. Aðstoða þurfti farþegana og bílstjóra rútunnar við að komast út úr henni. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd mátti ekki miklu mina að rútan færi ofan í skurðinn með veginum. Tryggja þurfti að hún færi ekki ofan í skurðinn, áður en farþegunum var hleypt út. Bændur á staðnum og björgunarfélagið Eyvindur stóðu að björgun fólksins. Þeim tókst að koma í hana böndum og halda rútunni stöðugri með hjálp vinnuvéla af nálægum bæjum. Eftir það þurfti að moka frá dyrum rútunnar og hjálpa farþegum út einum og einum. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að ferðamennirnir hafi haldið ró sinni á meðan þessu fór fram. Samkvæmt Lögreglunni á Suðurlandi eru allir farþegar óslasaðir og var önnur rúta fengin til að sækja þau. Ferðamennirnir þurftu að bíða í um klukkustund eftir rútunni.Mynd/Herbert HaukssonMynd/Herbert Hauksson
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Sjá meira