Innlent

31 kærður fyrir að aka ölvaður á Suðurlandi

Atli Ísleifsson skrifar
Sérstaklega vel var fylgst með umferðinni þessa mestu ferðahelgi ársins.
Sérstaklega vel var fylgst með umferðinni þessa mestu ferðahelgi ársins. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Alls var 31 ökumaður kærður fyrir að aka ölvaðir í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi í liðinni viku. Átján þeirra voru stöðvaðir á frídegi verslunarmanna á leið sinni frá Þjóðhátíð í Vestmanneyjum.

Lögregla var með stöðuga vakt í Landeyjahöfn þar sem ökumönnum var boðið að blása í öndunarsýnamæli áður ein þeir héldu af stað. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að mjög margir hafi nýtt sér þjónustuna en að einhverjir hafi misreiknað sig og lagt af stað með of hátt áfengismagn í blóðinu. Þá voru átta ökumenn kærðir í vikunni vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum fíkniefna við akstur.

Allmörg umferðarslys

Í skýrslu lögreglu kemur fram að allmörg umferðarslys hafi orðið í umdæminu í liðinni viku.

„Þann 28. júlí s.l. á Dyrhólavegi, skammt frá Garðakoti, ók ferðamaður frá vegarbrún og inn á veg í veg fyrir umferð sem á eftir kom þannig að árekstur varð með bifreiðunum. Einn kvartaði undan meiðslum en ætlaði sjálfur að leita á slysadeild.

Sama dag varð eldri kona fyrir bíl þar sem hún gekk á gangbraut yfir Austurveg á Selfossi.  Hún var flutt á sjúkrahús á Selfossi en er ekki alvarlega slösuð.

Eftir miðjan dag á sunnudag, 31. júlí var bifreið ekið út frá Hafnarbrú á Eyrarbakka og í veg fyrir bifhjól sem ekið var eftir Eyrarbakkavegi. Ökumaður bifhjólsins var fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús í Reykjavík en meiðsl hans reyndust hinsvegar minniháttar.

Aðfaranótt 1. ágúst valt bifreið, með tveimur ungum piltum, margar veltur á Þórsmerkurvegi. Þeir voru fluttir með þyrlu LHG til Reykjavíkur, annar þeirra meðvitundarlaus en einnig í því tilfelli reyndust meiðsl minniháttar,“ segir í fréttinni, en einnig segir að 56 ökumenn hafi verið kærðir fyrir að aka of hratt.

Sjö gistu fangageymslur á Selfossi

„Verslunarmannahelgin gekk vel fyrir sig að mestu leyti þó fjöldi ölvaðra ökumanna skyggi nokkuð á í þeim efnum. 7 gistu fangageymslur á Selfossi vegna ölvunarástands án þess þó að brot þeirra væru alvarleg.

Mikill erill var í kring um viðburði á Flúðum en eins og svo oft áður þá beindist þörfin fyrir löggæslu ekki síður að fulltíða einstaklingum sem þar voru á meðan yngri kynslóðin skemmti sér vel. Í gær funduðu fulltrúar þeirra sem komu að gæslu og sjúkragæslu með sveitarstjóra þar sem farið var yfir reynslu helgarinnar og verður niðurstaða þess fundar veganesti inn í framtíðina þegar kemur að skipulagi í kring um komandi verslunarmannahelgar,“ segir í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×