Klessubílatækið opnað aftur Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 7. nóvember 2016 17:04 Klessubílarnir voru ekki í notkun í Smáratívolíi í gær. vísir/ernir
Opnað var aftur í klessubílana í tívolíinu í Smáralind í dag. Tækinu var lokað á laugardag eftir að sjö ára stúlka fékk raflost í tækinu, en Vinnueftirlitið tók út vettvanginn í morgun. Veski sem stúlkan hafði meðferðis festist í tækinu með þeim afleiðingum að skammhlaup varð. Hún var flutt á sjúkrahús en slasaðist ekki alvarlega, samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Tækinu var hins vegar ekki lokað fyrr en læknir á spítalanum tjáði fjölskyldu stúlkunnar að hringja þyrfti á lögregluna vegna málsins. Lögregla hafði í kjölfarið samband við Vinnueftirlitið og Mannvirkjastofnun, sem tóku út vettvang slyssins. Niðurstöður rannsóknarinnar liggja ekki fyrir að svo stöddu, en Vinnueftirlitið taldi ekki hættu á ferð og gaf því grænt ljós á opnun. María Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Smáratívolís, vildi ekki tjá sig um málið.Uppfært klukkan 19:20: María Björk segir að Vinnueftirlitið hafi í dag farið yfir alla þætti öryggismála og reyndist ekki um neina bilun að ræða. Því hafi tækið verið opnað á ný. Þá verði eftir óhappið farið yfir allt sem betur fá fara og gerðar ráðstafanir hjá Smáratívolí til að koma í veg fyrir að svona atvik geti ekki átt sér stað aftur.
Tengdar fréttir Klessubílunum í Smáratívolí lokað eftir að sjö ára stúlka fékk raflost Stúlkan var að keyra klessubíl þegar keðjuól veskis sem hún bar datt í gólfið með þeim afleiðingum að skammhlaup varð og hún fékk straum. 6. nóvember 2016 21:55 Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Innlent Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Fleiri fréttir Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs Sjá meira
Klessubílunum í Smáratívolí lokað eftir að sjö ára stúlka fékk raflost Stúlkan var að keyra klessubíl þegar keðjuól veskis sem hún bar datt í gólfið með þeim afleiðingum að skammhlaup varð og hún fékk straum. 6. nóvember 2016 21:55