Kennarar líta á samninginn sem vopnahlé til eins árs Jóhann Óli Eiðsson skrifar 14. desember 2016 07:00 Kennarar skiptust í tvær fylkingar í atkvæðagreiðslunni. Minnihlutinn vildi að núverandi samninganefnd viki og halda baráttunni áfram. Hann laut í gras fyrir sjónarmiðum um að halda áfram að ári og þá á hærra kaupi. Vísir/Ernir
Þrátt fyrir að hafa samþykkt nýjan kjarasamning í atkvæðagreiðslu í fyrradag eru kennarar ekki sáttir. Samkomulaginu hefur verið líkt við vopnahlé. Skrifað var undir samning 29. nóvember síðastliðinn og hann samþykktur með 55 prósentum greiddra atkvæða í fyrradag. 43 prósent sögðu nei en tæplega 91 prósent kennara tók þátt í atkvæðagreiðslunni. Áður höfðu kennarar fellt kjarasamninga tvívegis. Hinn nýi samningur er til nóvember á næsta ári og felur í sér tæplega ellefu prósenta flata launahækkun auk 200 þúsund króna eingreiðslu við undirritun. Fréttablaðið heyrði í gær í kennurum víða um land til að kanna afstöðu þeirra til úrslita kosninganna. Nær allir eru sammála um að í niðurstöðunni felist ekki sigur, ekki einu sinni áfangasigur. Í raun sé um vopnahlé að ræða á meðan kanónurnar séu hlaðnar að nýju fyrir þau átök sem vænta má eftir lok samningstímans á næsta ári. Á umræðuvettvangi kennara hefur talsvert verið rætt og ritað um niðurstöðuna. Þeir sem höfnuðu samningnum eru sárir út í já-hópinn. Þeir vildu frekar fella samninginn og kjósa nýtt fólk til að fara fyrir samninganefnd kennara. Allir virðast hins vegar vera sammála um að halda baráttunni áfram. Tugir kennara sögðu starfi sínu lausu í síðasta mánuði. Meira virðist vera um það að kennarar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi segi upp heldur en á landsbyggðinni. Hluti þeirra sem sagði upp hefur dregið uppsagnir sínar til baka. Aðrir liggja enn undir feldi og velta því fyrir sér hvað skuli gera. Í hópi þeirra sem Fréttablaðið heyrði í voru kennarar sem ákveða sig á næstu dögum. Þeir segja ljóst að samningurinn verði ekki til þess að halda í þá. Hins vegar komi til greina að draga uppsögnina til baka til þess að halda baráttunni áfram á næsta ári. Sveitarfélögin og samninganefnd þeirra séu á skilorði. Haldi hún áfram á sömu braut megi búast við því að kennarar fái endanlega nóg.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira