Greinileg batamerki sjást á lífríki Mývatns Svavar Hávarðsson skrifar 22. október 2016 07:00 Grænum lit slær á Mývatn þegar bakteríurnar ná sér á fullan skrið, eins og hér 5. september í sumar. Mynd/ÁE/RAMÝ
Magn blábaktería í Mývatni í sumar fór á tímabili vel yfir það magn sem talið er varasamt í leiðbeiningum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Hins vegar var magn blábaktería mun minna en tvö síðastliðin sumur þegar bakteríurnar hreinlega yfirtóku lífríkið. Lífríki vatnsins hefur tekið við sér að nokkru leyti. Árni Einarsson, forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn (RAMÝ), segir að strax í júní hafi bakteríurnar gert vart við sig í Ytriflóa (norðurhluta Mývatns) og blóminn hafi ekkert látið á sér kræla í Syðriflóa fyrr en óvenju seint. Um miðjan ágúst náði hann þangað. Í byrjun september hafi hann þó rokið upp og mælingar í útfalli Laxár hafi farið yfir 60 [míkrógrömm af blaðgrænu í hverjum lítra vatns] þegar mest var. Tölur yfir 50 er talið varasamt í leiðbeiningum WHO. Árni segir að mörkin sem WHO setur varði það hvort vatnið geti verið varasamt fyrir heilsu fólks sem baðar sig í vatninu eða drekkur það. Hvorugt eigi þó við í Mývatni í dag.Árni EinarssonÁrni segir að þó mun minna sé af bakteríum í sumar en árin á undan þá breyti það ekki nauðsyn þess að grípa til aðgerða. Vatnið hafi ekki náð að verða tært í 15 ár og botngróður að mestu horfinn þess vegna með neikvæðum áhrifum á lífríkið. „Þegar dregur úr bakteríublómanum hjarnar lífríkið við, og það gerðist í sumar. Það voru greinileg batamerki á átu, andarungar komust fleiri á legg og það er að koma upp smásilungur í vatninu aftur,“ segir Árni en segir að hornsílatalning sumarsins hafi verið sú lægsta síðan þær rannsóknir hófust 1989. Því hefur þriðja sumarið bæst við þá sögulegu lægð sem hornsílastofninn er í. Til marks um það sást fiskætan toppönd ekki á vatninu í sumar að kalla, en fækkun hennar hefur fylgt hruni hornsílisins. Eins og Fréttablaðið hefur fjallað um sýnir lífríki Mývatns augljós og alkunn merki um ofauðgun. Þau merki fóru að sjást fyrir mörgum árum og talin tengjast athöfnum manna sem hafa breytt næringarefnaflæði í vatnið. Mývatn er mjög næringarríkt frá náttúrunnar hendi og fræðilega séð getur smá viðbót farið með lífríkið í annan og óæskilegan farveg. Helst hefur verið litið til fráveitumála við Mývatn og niðurstaða samstarfshóps umhverfisráðherra um málefni vatnsins er að rétt sé að ríkisvaldið og Skútustaðahreppur vinni saman að umbótum í fráveitumálum og öðrum aðgerðum til að draga úr innstreymi næringarefna í Mývatn.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Tengdar fréttir Grípa þarf strax til aðgerða við Mývatn til bjargar lífríki Hefja þarf greiningarvinnu á fráveitumálum í Skútustaðahreppi sem fyrst, framkvæmdir verða að bíða næsta árs. Ríkið verður að koma að málum. Fræða þarf íbúa þéttbýlis, bændur og ferðamenn um vandann. 22. júní 2016 06:00 Nauðsynlegt að draga úr losun næringarefna í Mývatn Samstarfshópur um málefni Mývatns hefur skilað skýrslu sinni til umhverfisráðherra. 20. júní 2016 21:00 Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira
Grípa þarf strax til aðgerða við Mývatn til bjargar lífríki Hefja þarf greiningarvinnu á fráveitumálum í Skútustaðahreppi sem fyrst, framkvæmdir verða að bíða næsta árs. Ríkið verður að koma að málum. Fræða þarf íbúa þéttbýlis, bændur og ferðamenn um vandann. 22. júní 2016 06:00
Nauðsynlegt að draga úr losun næringarefna í Mývatn Samstarfshópur um málefni Mývatns hefur skilað skýrslu sinni til umhverfisráðherra. 20. júní 2016 21:00